Umboðsmaður Alþingis tekur undir sjónarmið fanga Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. desember 2009 16:18 Litla Hraun. Mynd/ GVA.
Dómsmálaráðuneytið þarf að taka til endurskoðunar málefni fanga sem kvartaði til ráðuneytisins vegna agaviðurlaga sem Fangelsisstjórinn á Litla Hrauni beitti hann. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns Alþingis. Fanginn leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir úrskurði dóms- og kirkjumálaráðherra, nú dómsmála- og mannréttindaráðherra, þar sem staðfest var sú ákvörðun forstöðumanns fangelsisins að Litla-Hrauni um að fanginn skyldi sæta agaviðurlögum vegna þess að hann hafði undir höndum óheimilar lyfjatöflur. Deildarstjóri, hjúkrunarfræðingur og sálfræðingur í fangelsinu sögðu að lyfið sem um ræddi væri ritalin, en fanginn fullyrti sjálfur að þau væru blóðþynningarlyf. Eftir að lyfin fundust á honum við leit í klefa hans var hann sviptur hálfum launum, aukabúnaður sem hann mátti hafa inni í klefa var takmarkaður og reglur um heimsóknir til hans voru þrengdar. Umboðsmaður Alþingis telur að ráðuneytið hefði átt að kanna hvort umrædd lyf hafi verið blóðþynningarlyf. Umboðsmaður beinir þeim tilmælum til ráðuneytisins að það taki mál fangans til endurskoðunar komi fram beiðni þess efnis frá honum. Þá vill umboðsmaður Alþingis að gerðar verði ráðstafanir til að koma á skilvirkara og kerfisbundnara skipulagi í ríkisfangelsinu að Litla-Hrauni og öðrum fangelsum landsins, í þeim tilvikum þegar grunur vaknar um brot fanga á 5. grein fangelsisreglna. Í greininni er meðal annars fjallað um bann við meðferð fanga á ólöglegum lyfja.
Mest lesið Vaktin: Greiða atkvæði um „kjarnorkuákvæðið“ Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Draga Dettifoss til Reykjavíkur Innlent Fleiri fréttir Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Greiða atkvæði um „kjarnorkuákvæðið“ Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ Sjá meira