Fullbyggður vegur ónothæfur sökum klúðurs 26. ágúst 2009 12:03 MYND/Vilhelm
Samgönguyfirvöld standa nú frammi fyrir einhverju mesta klúðri í sögu íslenskra vegamála. Ekki er hægt að opna nær fullbyggðan veg í stað Öxarfjarðarheiðar þar sem Vegagerðin hafði ekki tryggt sér leyfi til að leggja síðustu tvo kílómetrana. Sveitarstjórnir á Norðausturlandi er ævareiðar. Vegurinn sem kallast Hófaskarðsleið liggur þvert yfir Melrakkasléttu og á að tengja Raufarhöfn, Þórshöfn og Kópasker og er einhver viðamesta vegagerð sem unnið er að hérlendis um þessar mundir. Vegarlagningin hófst fyrir tveimur árum, þrátt fyrir að bóndi einn nálægt Kópaskeri sætti sig ekki við fá veginn í gegnum sitt land. Vegagerðin taldi það ekki hindrun og virtist viss um að geta tekið land bóndans eignarnámi. Bóndinn gaf sig ekki og fór málið alla leið upp í Hæstarétt en þar hafði bóndinn sigur. Vegagerðin situr því uppi með 30 kílómetra langan nær fullbyggðan malbikaðan veg nema það vantar tvo kílómetra í gegnum land bóndans. Sveitarstjórn Langanesbyggðar krefst þess nú að stjórnvöld bjargi klúðrinu. Nú er komin upp sú hugmynd að leggja síðasta kaflann um land annars bónda, sem er sagður samþykkur. Það er hins vegar ekki hægt að halda áfram þar sem Skipulagsstofnun vill að sá kafli fari í umhverfismat. Á norðausturhorni landsins vilja menn ekki bíða lengur.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Fleiri fréttir Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira