Með gamalt rokk í mjöðm 30. maí 2009 05:00 Rokkabillísveitin snjalla hefur gefið út plötuna Drullukalt sem inniheldur tíu glæný lög.
Rokkabillísveitin Langi Seli og Skuggarnir snýr aftur eftir sautján ára hlé. Fimmtugsafmælið kveikti á gömlu rokkvélinni. Platan ber heitið Drullukalt og inniheldur tíu ný lög eftir Langa Sela og Jón Skugga. Síðasta plata sveitarinnar kom út í byrjun tíunda áratugarins, eða fyrir um sautján árum, og því löngu kominn tími á endurkomu Langa Sela og félaga. „Ég hætti að starfa í tónlist og fór að vinna sem leikmyndahönnuður,“ segir Seli um hið langa hlé. „Síðan var ég plataður í að spila í fimmtugsafmæli hjá vinkonu minni og þá tók sig upp gamalt rokk í annarri mjöðminni og þetta er niðurstaðan.“ Drullukalt ber í raun ekki nafn með rentu því hún er ekta sumarplata sem ætti að koma fólki í gott skap í sólinni. „Það er mjög skemmtilegt að hafa hana í bílnum,“ viðurkennir Seli. „Þegar maður „krúsar“ upp Ártúnsbrekkuna byrjar hún að „kikka“ inn.“ Auk Sela og Jóns Skugga, sem eru upprunalegir meðlimir sveitarinnar, hafa bæst í hópinn þeir Erik Qvick og Gísli Galdur. „Fyrir mig er þetta heiður að hafa þessa þrjá gaura í bandinu. Ég þarf ekkert að hafa fyrir þessu,“ segir Seli. Til að fagna plötunni verða útgáfutónleikar haldnir á Café Rósenberg í kvöld og hefjast þeir klukkan 22. Þeir félagar ætla að vera duglegir við spilamennsku í sumar og útiloka ekki að spila á Norðurlöndunum, enda mikil vakning orðið þar í rokkabillítónlist. „Við ætlum að láta reka á reiðanum og sjá hvað gerist. Við erum að spila eins mikið og við getum því okkur finnst gaman af því.“ - fb
Mest lesið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Bíó og sjónvarp Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Súrdeigsbrauðdrottningin breytti pítsadeigi í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf Förðunardrottning selur á Framnesvegi Lífið Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Sjá meira