Kveður bæinn selja hús á undirverði 3. apríl 2009 06:30 Róbert Hlöðversson „
Það að bærinn ætli að greiða kostnað vegna dagdvalar með hluta fasteignarinnar hlýtur að vera lögleysa,“ segir í bókun Róberts Hlöðverssonar, oddvita minnihlutans í bæjarráði Hveragerðis. Róbert gagnrýnir sölu bæjarins á húseigninni Hverahlíð 24 til Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Hann segir að miðað við kaupréttarsamning frá árinu 1999 og miðað við að umrætt hús sé 300 fermetrar ætti Grund að greiða þrjátíu milljónir króna fyrir húsið en fái það hins vegar á 20,5 milljónir með því að fá þrettán prósenta afslátt auk þess sem bærinn leggi fram 65 fermetra af húsinu sem greiðslu fyrir kostnað vegna dagdvalar eldri borgara næstu fimm árin. „Umræddur kaupréttarsamningur, sem gerður var af meirihluta Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn 1999, er búinn að kosta bæjarfélagið gríðarlega fjármuni,“ segir Róbert. Fulltrúar meirihlutans bókuðu hins vegar á móti að samningurinn við Grund væru afar góður og sparaði bænum minnst tuttugu milljónir króna á fimm árum. „Hvað varðar aðdróttanir um lögleysu er rétt að benda bæjarfulltrúanum á að enn sem komið er ríkir sem betur fer samningsfrelsi á Íslandi og því er heimilt að semja um allt það sem ekki er andstætt lögum eða brot gegn almennu siðferði. Hvorugt er til staðar hér en ef bæjarfulltrúinn gæti bent á lagagrein sem verið er að brjóta væri það ágætt,“ bókuðu Aldís Hafsteinsdóttur bæjarstjóri og Guðmundur Þór Guðjónsson. - gar
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira