Heilbrigðisráðuneytið og Hrafnista undirrita samkomulag 3. apríl 2009 15:38 Frá undirskrift samningsins.
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, og Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna, undirrituðu í dag samning um rekstur 20 rýma fyrir aldraða sem þurfa svokallaða skammtímavistun og um rekstur 30 dagdeildarrýma. Gildistími samningsins er fimm ár. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að auglýst hafi verið eftir rekstraraðila til að reka allt að 35 skammtíma hjúkrunarrými og allt að þrjátíu dagdeildarrými. „Þrjú tilboð bárust í verkefnið og lægsta tilboð barst frá Hrafnistu í rekstur á 20 skammtíma hjúkrunarrýmum með endurhæfingu og 30 dagdeildarrýmum með endurhæfingu. Kostnaðurinn við samninginn er um 284 milljónir króna á ári." „Markmið samningsins er að stuðla að því að aldraðir geti búið sem lengst heima hjá sér með því að bjóða upp á þjónustu sem byggist á vistun, endurhæfingu eða viðhaldi endurhæfingar sem þegar er hafin. Jafnframt er boðið upp á þessa þjónustu til að hvíla viðkomandi og þá sem sinna öldruðum á heimilum þeirra. Þjónustan er ætluð sjúklingum sem fá heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu og skjólstæðingum öldrunarsviðs Landspítala," segir ennfremur. Þeir eiga rétt á hvíldarinnlögn sem að mati heimahjúkrunar og öldrunarsviðs Landspítala þurfa tímabundna vistun, t.d. vegna heilabilunar á tilteknu stigi, dægurvillu, eða vegna þátta sem tengjast fjarveru eða aðstæðum þeirra sem ella sjá um viðkomandi. „Dagdeildarrýmin eru hins vegar úrræði fyrir þá sem eiga erfitt með að dvelja einir heima. Gert er ráð fyrir að dagdvöl sé opin alla virka daga frá kl. 08.00 - 19.00, nema laugardaga," segir ennfremur. Lögð er áhersla á að með skammtímavistun og hvíldarinnlögnum er komið til móts við vilja þeirra sem vilja fá aðstoð heima hjá sér og að þessi leið í þjónustu við aldraðra er jafnframt hagkvæmari en dýr stofnanaúrræði.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira