Notast við stórvirkar vinnuvélar við björgunarstörf 1. október 2009 18:30
Vegna skorts á þjálfuðum mannskap nota björgunarsveitir á Súmötru stórvirkar vinnuvélar til þess að leita að fólki í rústum hundruða húsa sem hrundu í jarðskjálftanum í gær. Við vörum við myndum sem fylgja þessari frétt. Hamfarasvæðið er svo stórt að talið er að það muni taka of langan tíma að grafa varlega í rústunum. Yfir 500 hafa þegar fundist látnir og talið er að þúsundir til viðbótar séu grafnir í rústum yfir 500 húsa. Þar á meðal eru skólar, hótel, sjúkrahús og verslunarmiðstöðvar. Hernum hefur verið skipað að stefna sínum jarðýtum og öðrum stórvirkum vinnuvélum til höfuðborgarinnar Padang þar sem mest tjónið varð. Auk þess að jafna hús við jörðu rauf jarðskjálftinn vegi og eyðilagði símstöðvar, sem gerir björgunarstarfið enn erfiðara. Jarðskjálftinn var svo öflugur að háhýsi sveifluðust til í Malasíu og Singapore í mörghundruð kílómetra fjarlægð. Í ljós hefur komið að einhverjir fórust í umferðarslysum eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Minnugir flóðbylgjunnar skelfilegu sem varð 230 þúsund manns að bana um jólin 2004 héldu margir að flóðbylgja myndi fylgja þessum skjálfta. Skelfingu lostnir íbúarnir reyndu því að flýja borgina á bílum sínum og mótorhjólum og við það urðu mörg slys.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira