Þingmenn skrái og birti fjárhagslega hagsmuni sína 16. mars 2009 17:16 Frá Alþingi
Forsætisnefnd Alþingis samþykkti í dag reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings. Í reglunum er kveðið á um að skrifstofa Alþingis skuli halda skrá, og birta opinberlega, um fjárhagslega hagsmuni alþingismanna svo og um trúnaðarstörf þeirra utan þings. Með setningu reglnanna ætlast forsætisnefnd til þess að alþingismenn skrái fjárhagslega hagsmuni sína og birti þá opinberlega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis. Þar segir ennfremur að gert sé ráð fyrir að reglurnar verði endurskoðaðar fyrir 1. des. nk. með það í huga að þá verði sett lög um þessa skráningu. Reglurnar hafa verið unnar með hliðsjón af þeim reglum sem gilda um þetta efni í danska þinginu auk þess sem horft hafi verið til samsvarandi reglna í norska þinginu. „Í reglunum eru tilgreindir þeir fjárhagslegu hagsmunir sem þingmenn skuli skrá. Þar er m.a. um að ræða skráningu á launaðri starfsemi (annarri en þingmennsku), eignum (öðrum en eigið húsnæði), fjárhagslegu samkomulagi við fyrrverandi eða verðandi vinnuveitenda, fjárhagslegum stuðningi og gjöfum frá innlendum og erlendum lögaðilum og einstaklingum, utanlandsferðum og eftirgjöf eftirstöðva skulda o.s.frv." Með síðastnefnda atriðinu kemur fram að ætlað sé að tryggja að það komi skýrt fram ef menn njóta sérstakra fríðinda við meðferð skulda sinna. Í því skyni er þingmönnum ætlað að upplýsa um eftirgjöf eftirstöðva skulda auk þess sem skrá skal ívilnandi breytingar á skilmálum samnings við lánardrottin og jafnframt að tilgreina skuli skuldasamning með hagstæðari skilmálum en almennt tíðkast í hliðstæðum samningum. „Reglurnar kveða einnig á um að skráðar skuli upplýsingar um stjórnarsetu og önnur trúnaðarstörf fyrir hagsmunasamtök, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félög önnur en stjórnmálaflokka óháð því hvort þessi störf eru launuð. Skrá skal nafn félags, hagsmunasamtaka, stofnunar eða sveitarfélags og eðli trúnaðarstarfs. Þó að reglur þessar gildi fyrst og fremst um þingmenn þá taka þær til varaþingmanna sem setið hafa fjórar vikur samfellt á þingi. Þá geta ráðherrar, sem ekki eru þingmenn, einnig fært upplýsingar í samræmi við þessar reglur."
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira