MIH: 444 óseldar íbúðir í Hafnarfirði 19. mars 2009 22:30 Ágúst Pétursson formaður MIH.
Síðustu misseri hefur mikið verið fjallað um fjölda óseldra íbúða í eigu verktaka á höfuðborgarsvæðinu. Meistarafélagi iðnaðarmanna í Hafnarfirði (MIH) hefur þótt umfjöllun um þetta mál vera alltof neikvæð. Í sömu frétt hafa fjölmiðlar oft á tíðum ekki gert greinarmun á tilbúnum íbúðum, íbúðum í byggingu og óbyggðum lóðum sem eru að mestu leiti í eigu sveitafélaga. Almennur lesandi hefur túlkað þetta allt saman sem fullbúnar óseldar íbúðir, sem er mikil blekking. MIH ætlar ekki í rökræður um það hve mikið hefur verið byggt umfram þarfir undanfarin misseri en bendir þó á að áætluð ársþörf fyrir nýjar íbúðir er um það bil 1.800. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu nú í kvöld. Þar segir að á síðasta aðalfundi Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði,13. febrúar sl., hafi formaður félagsins upplýsti í skýrslu sinni niðurstöður óformlegrar talningar á óseldum íbúðum í fjölbýli í Hafnarfirði. Einbýlishús, parhús og raðhús voru undanskilin. Samband hafði verið haft við alla verktaka og óskað upplýsinga um fjölda óseldra íbúða og staðfestinga leitað hjá fasteignasölum. „MIH telur rétt að geta þess að margar fullbúnu íbúðanna eru ekki tómar heldur eru þær komnar í leigu. Samt töldum við rétt að telja þær vegna þess að þær eru flestar á söluskrá. MIH telur rétt að benda á að fokheldar íbúðir, sem til sölu eru í Áslandi 3 og í Vallarhverfi, eru flestar mjög hentugar fyrir „fyrstu íbúðar kaupendur". Það er hópur sem margir líta á sem aðal kaupendahópinn í dag. Því miður er samt mjög erfitt að nálgast fjármögnun til að klára þessar íbúðir, bæði vegna tregðu fjármálastofnana og eins gríðarlega hárra vaxta. Mánudaginn 16. mars birtist grein í Mbl. þar sem stuðst var við talningu Ara Skúlasonar sem er frá mánaðamótum júní/júlí 2008. MIH telur alveg fráleitt að svo gömul talning stýri umræðunni um stöðu íbúðamarkaðarins. Margt hefur breyst á þeim tæplega níu mánuðum sem liðnir eru." Nðurstöður könnunar MIH: Fokhelt + Fullbúnar Norðurbakkinn 95 99 Skipalón 0 71 Reykjavíkurv/Flatahr. 0 22 Ásland 3 20 13 Vallarhverfi 113 11 Samt. 228 216
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira