Trymbill sest í leikstjórastól 2. júlí 2009 05:00 Frosti Jón segir það erfitt verk að þurfa að klippa til sína eigin mynd. fréttablaðið/Anton
Kreppan hefur ekki einungis neikvæð áhrif á land og þjóð og virðist sem margir hafi ákveðið að setjast á skólabekk á ný í kjölfar hennar. Frosti Jón Runólfsson, trymbill hljómsveitarinnar Esju, er á meðal þeirra og stundar hann nú nám við Kvikmyndaskóla Íslands og ber því vel söguna. Frosti lauk nýverið við tökur á lokaverkefni annarinnar sem er stuttmynd með þeim Walter Grímssyni og Lilju Nótt Þórarinsdóttur í aðalhlutverkum. Stuttmyndin fjallar um ungan, fráskilinn mann sem strýkur úr fangelsi til þess að geta eytt tíma með dóttur sinni á afmælisdegi hennar. Myndin var frumsýnd við góðar undirtektir á skemmtistaðnum Boston fyrir nokkru síðan og nú vonast Frosti til þess að koma henni til sýningar á RIFF-kvikmyndahátíðinni. Frosti Jón sá ekki einungis um að leikstýra myndinni heldur skrifaði einnig handritið að henni og sá um alla eftirvinnslu. „Það er gott að hafa grunnþekkingu á þessu öllu en næst fæ ég fagfólk í þessi störf. Það er nær djöfullegt að klippa í sundur eitthvað sem þú hefur skrifað og skotið sjálfur. Ég átti allavegana erfitt með það, ég á það líka til að klippa efnið mitt eins og tónlistarmyndband sem er ekki töff, segja þeir sem þekkja til." Hugmyndina að handritinu segist Frosti hafa fengið þegar hann sat og horfði á ljósmynd af fjöldamorðingjanum John Wayne Gacy, en sá var þekktur fyrir að klæða sig upp sem trúð og skemmta vinum sínum. Í kvikmyndinni klæðist aðalhetjan sem trúður til að komast undan lögreglunni. Frosti Jón segir tímann verða að leiða það í ljós hvað hann geri í framtíðinni, „Vonandi mun bransinn taka mér opnum örmum þegar ég útskrifast, þangað til er ég stoltur nemi Ferris Bueller style."
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira