Íslensk stúdína á Nýja Sjálandi með svínaflensuna Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 10. júlí 2009 10:04 Freyja ásamt vinum sínum í Nýja Sjálandi, en hún er önnur frá vinstri á myndinni. „
Ég er ekkert hræddari núna en þegar maður fær venjulega flensu," segir Freyja Oddsdóttir, 25 ára stúdína á Nýja Sjálandi. Hún liggur rúmföst um þessar mundir með hausverk, hita, beinverki og ljótan hósta - líklegast smituð af svínaflensu. Freyja er í Nýja Sjálandi á vegum stúdentasamtaka sem hún vinnur fyrir. Hún telur sig hafa smitast af svínaflensunni á ráðstefnu sem hún tók þátt í að skipuleggja fyrr í mánuðinum. Að hennar sögn tók fólk að veikjast á ráðstefnunni, fyrst fáir en síðan sífellt fleiri. Skipuleggjendurnir hafi þá haft samband við heilbrigðisráðuneyti landsins, en var sagt að hafa ekki áhyggjur. Það var síðan að ráðstefnunni lokinni sem sumir hinna veiku leituðu sér aðstoðar og voru allir greindir með flensuna ógnvænlegu. Alls hafa um fimmtánhundruð tilfelli verið staðfest í landinu og viðbragðsstig stjórnvalda hefur verið hækkað úr „containment" í „management". „Þeir eru hættir að gera prufur á fólki, nú spyrja þeir bara um einkennin og greina sjúklinga þannig," segir Freyja, sem er talsvert slöpp. „Þetta er svipað og venjuleg flensa, en frekar óskemmtilegt auðvitað." Um sex manns hafa látist af svínaflensunni í Nýja Sjálandi svo vitað sé. Freyja segist þó ekki hafa miklar áhyggjur. „Ég held að þetta verði allt í lagi, þetta er ekki svo mikið mál hér," segir Freyja, og bendir á að dánartíðni vegna svínaflensunnar sé ekkert endilega hærri en af hverri annarri flensu.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki hafi verið boðið lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Sjá meira