Mál séra Gunnars í höndum biskups Magnús Már Guðmundsson skrifar 8. september 2009 16:41 Eysteinn Jónasson, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju. „
Við fengum það út úr úrskurðinum sem við vildum í rauninni, en við vildum láta kanna hvort þetta bryti ekki gegn siðareglum Prestafélagsins,“ segir Eysteinn Jónasson, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju, um niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli séra Gunnars Björnssonar. Eysteinn segir málið nú vera í höndum biskups. Séra Gunnar var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum úr söfnuði sínum. Málið fór fyrir héraðsdóm og Hæstarétt þar sem hann var sýknaður. Þó var talið sannað að Gunnar hefði sýnt þá háttsemi sem ákært var fyrir, hún var hins vegar ekki talin falla undir kynferðislega áreitni né ósiðlegt athæfi. Gunnar hefur undanfarin tvö ár verið í leyfi frá störfum vegna málsins. Fram kemur í niðurstöðu úrskurðarnefndar að Gunnar hafi gerst sekur um ótvírætt siðferðisbrot en ekki agabrot. Nefndin hafnaði kröfu sóknarnefndar um að Gunnar fái ekki að snúa aftur til starfa í Selfosskirkju sem sóknarprestur. Eysteinn segir að sóknarnefndin hafi aldrei reiknað með því að úrskurðarnefndin myndi sjá til þess að séra Gunnar kæmi ekki aftur. Úrskurðarnefndin hafi ekki slík völd heldur gefi hún biskup ráðgefandi álit. Málið sé nú í höndum biskups en málsaðilar hafa þrjár vikur til að áfrýja úrskurði úrskurðarnefndar. Sóknarnefnd Selfosskirkju kemur næst saman til fundar á fimmtudag og verður úrskurðurinn ræddu á þeim fundi. Eysteinn segir sóknarnefndina hafa verið einhuga í að óska eftir áliti úrskurðarnefndar um hvort siðferðisbrot hafi verið að ræða.
Tengdar fréttir Séra Gunnar hvorki átti né mátti Gunnar Björnsson sýndi af sér háttsemi sem prestur hvorki á né má sýna af sér gagnvart sóknarbörnum. Þetta kemur fram í niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli Gunnars sem hefur verið í leyfi frá störfum sem sóknarprestur á Selfossi eftir að hann var kærður fyrir tæpum tveimur árum fyrir kynferðisbrot gagnvart ungum stúlkum sem voru sóknarbörn hans. 7. september 2009 15:13 Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Nei-hliðin kallar „Já til að sjá“ markaðsbrellu Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Sjá meira
Séra Gunnar hvorki átti né mátti Gunnar Björnsson sýndi af sér háttsemi sem prestur hvorki á né má sýna af sér gagnvart sóknarbörnum. Þetta kemur fram í niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli Gunnars sem hefur verið í leyfi frá störfum sem sóknarprestur á Selfossi eftir að hann var kærður fyrir tæpum tveimur árum fyrir kynferðisbrot gagnvart ungum stúlkum sem voru sóknarbörn hans. 7. september 2009 15:13