Skipuleggja íþróttaveislur í skugga óaldar 31. október 2009 05:15
Í fátækrahverfum Rio de Janeiro í Brasilíu ráða stórtækir eiturlyfjabarónar lögum og lofum. Þeir kalla sig nöfnum á borð við ‚Scooby' og ‚Big Baby', eru búnir bestu vopnum sem völ er á, sæta ásökunum um að pynta lögreglumenn og tókst fyrir viku að skjóta niður lögregluþyrlu. Átökin sem blossuðu upp í kjölfar þess að þyrlunni var grandað hafa vakið heimsathygli. Yfir fjörutíu liggja í valnum eftir stríð herlögreglu við glæpagengin og spurningar hafa vaknað um það hvort borgin er nægilega örugg til að hýsa heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu 2014, sem fram fer í Rio og víðar í Brasilíu, og sumarólympíuleikana 2016. Undirbúningur fyrir báðar íþróttahátíðirnar er nú í fullum gangi. Rio de Janeiro er ekki stríðshrjáð borg í þriðja heiminum. Hún er þvert á móti gríðarvinsæll áfangastaður ferðamanna og einkum þekkt fyrir glæsilegar baðstrendur, fjörugt næturlíf og miklar kjötkveðjuhátíðir. Það er því von að óöldin þar veki sérstakt umtal. Átökin hófust þegar um 150 liðsmenn Rauða valdsins, glæpagengis úr norðurhluta borgarinnar, réðust til atlögu við keppinauta sína í fátækrahverfinu á Apahæð á laugardaginn var. Lögregla brást við eins og alltaf þegar slíkt kemur upp og sendi þyrlur á staðinn. Í fyrsta sinn var ein þessara þyrlna hins vegar skotin niður og þrír lögreglumenn létust. Þetta hleypti vitaskuld öllu í bál og brand. Lögregla vígbjóst og sendi 2.000 liðsmenn sína gráa fyrir járnum inn í tugi af þúsund fátækrahverfum borgarinnar í leit að sökudólgunum. Síðan hafa fjórir tugir látið lífið. Lögregla hefur heitið því að taka harðar á glæpamönnunum í borginni en nokkru sinni fyrr nú þegar þessir tveir stórviðburðir standa fyrir dyrum og borgaryfirvöld fullyrða að búið verði að taka á þessum vanda áður en að þeim kemur. Íbúar fátækrahverfanna - meðal annars leigubílstjórar, kaupsýslumenn, húsmæður, rakarar og lögreglumenn - segja yfirvöld hins vegar heyja vonlausa baráttu. Ómögulegt sé að sigrast á glæpagengjum fátækrahverfanna. Þeir vísa meðal annars í niðurstöður nýlegrar rannsóknar, sem sýnir að glæpamenn Brasilíu búa yfir þrefalt meira magni af vopnum en gjörvöll lögregla landsins. Árið 2008 voru 5.717 myrtir í fylkinu Rio, þar af langflestir í höfuðborg þess Rio de Janeiro. Til samanburðar má nefna að í Vancouver, sem hýsir vetrarólympíuleikana á næsta ári, voru framin samtals 58 morð í fyrra. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira