Össur ætlar ekki úr landi 28. ágúst 2009 06:00 kauphöllin Forstjóri Kauphallarinnar segir að neikvæð áhrif tvískráningar séu takmörkuð. Reynslan hingað til sé góð.fréttablaðið/stefán
Stjórn Össurar hf. óskaði í gær eftir að hlutabréf félagsins yrðu skráð í Kauphöll Danmerkur. Gert er ráð fyrir að skráningin verði samþykkt í næstu viku. Í dönsku kauphöllinni eru 180 fyrirtæki og verður Össur 36. stærsta fyrirtækið þar. „Það eru engin áform um að flytja starfsemina úr landi,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf.. Eingöngu sé um eðlilegt skref að ræða sem hafi verið lengi í undirbúningi. „Þetta er til þess að þjónusta betur þá erlendu aðila sem eiga í Össuri því með gjaldeyrishöftunum geta þeir ekki átt viðskipti með hlutabréfin,“ segir Jón. Um helmingur hlutabréfa Össurar er í eigu erlendra aðila og hefur Össur nú fengið undanþágu frá gjaldeyrislögum frá Seðlabankanum. Ákveðnar takmarkanir eru þó á undanþágunni en þeir sem keyptu hlutabréf eftir 1. apríl mega ekki fara með hlutabréfin úr landi. Segir Jón að einungis hafi örfáir aðilar verslað með hlutabréf Össurar síðan þá og eigi því takmörkin við um fáa. Einnig er skilaskylda á þeim gjaldeyri sem fæst við sölu Íslendinga á hlutabréfum. „Það er ljóst að þessi gjaldeyrishöft eru verulega íþyngjandi fyrir íslenskt atvinnulíf,“ segir Jón. Um 99,5 prósent af sölu Össurar fer fram erlendis. Allur hagnaðurinn kemur þó í gegnum Ísland, þar sem höfuðstöðvarnar eru hér. Þróunardeild fyrirtækisins er einnig á Íslandi og fer veruleg framleiðsla á flóknari stoðtækjum fram hér á landi. Aðeins starfa um 250 af 1.600 starfsmönnum Össurar á Íslandi. Össur mun áfram vera skráð í Kauphöll Íslands, eins og fyrirtækið hefur verið frá árinu 1999. Stækka á hlutafé Össurar við skráninguna um 5 til 7 prósent. „Stækkun hlutafjárins er til þess að auka seljanleika bréfanna því það vill enginn eiga hlutabréf á Íslandi,“ segir Jón sem gerir ráð fyrir að erlendir aðilar verði duglegir að selja hlutabréf sín um leið og skráningin verður samþykkt. Íslenska fyrirtækið Marel stefnir einnig á tvöfalda skráningu erlendis í Amsterdam eða Skandinavíu með það að markmiði að framkalla skilvirka verðmyndun hlutabréfa á ný.vidir@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira