Nú er ljóst að 42 eru látnir eftir sjálfsmorðssprengjuárás á hinn svonefnda byltingarvörð í Íran í gær. Á meðal þeirra sem létust voru nokkrir af hæst settu foringjum byltingarvarðarins. Enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér enn sem komið er en uppreisnarhópur súnní-múslima, Jundallah, er sterklega grunaður um að eiga hlut að máli en þeir eiga erfitt með að sætta sig við að höfuðandstæðingar þeirra, sjía-múslimar, haldi um stjórnartaumana í Íran.

