Árás vekur óhug Breta 6. nóvember 2009 02:00 „
Hvers konar stríð er þetta?" spurði breska dagblaðið Daily Mail í fyrirsögn á forsíðu í gær, daginn eftir að fimm breskir hermenn voru skotnir til bana í Afganistan. Árásarmennirnir voru afganskir lögreglumenn, sem tóku upp vopn sín þegar Bretarnir voru að hita sér te. Önnur blaðafyrirsögn í gær hljóðaði: „Blóðug svik", og var á forsíðu dagblaðsins Times. Árásin hefur vakið hörð viðbrögð í Bretlandi, og vilja margir að Bretar hætti þegar í stað allri þátttöku í hernaði í Afganistan. Hvernig eiga breskir hermenn að geta barist í Afganistan ef þeir geta ekki treyst afgönskum félögum sínum? spyrja gagnrýnendur. Spurningar hafa vaknað um hvort fjölþjóðaherlið Bandaríkjanna og NATO hafi hraðað um of þjálfun afganskra lögreglumanna, sem hafi orðið til þess að þeim sé ekki treystandi. Frá skrifstofu Gordons Brown forsætisráðherra bárust þau svör að breskan almenning þurfi að upplýsa betur um markmið og áherslur aðgerðanna í Afganistan. Bæði ríkisstjórn Verkamannaflokksins og stjórnarandstaða Íhaldsflokksins hafa verið fylgjandi veru breskra hermanna í Afganistan, en svo virðist sem einhverjir í Verkamannaflokknum séu farnir að fá bakþanka, þar á meðal Kim Howells, fyrrverandi aðstoðarráðherra í breska utanríkisráðuneytinu, sem hvetur til þess að breskir hermenn verði kallaðir heim frá Afganistan í áföngum, þvert ofan í afstöðu Gordons Brown forsætisráðherra. Brown heldur til Afganistans í dag og ætlar að flytja þar ræðu, en ekki er vitað hvert efni hennar verður. Egon Ramms, yfirmaður í höfuðstöðvum NATO í Hollandi, segir að tíminn vinni gegn fjölþjóðaherliðinu í Afganistan, sem á í harðri baráttu við talibana og aðra uppreisnarhópa þar. Ramms, sem hefur yfirumsjón með aðgerðunum í Afganistan, segir verulega hættu á því að pattstaða í Afganistan geti farið að grafa undan stuðningi almennings í aðildarríkjum NATO við hernaðinn í Afganistan. Ástandið hefur versnað þar jafnt og þétt síðustu misserin. Í gær var svo komið að meira en helmingurinn af starfsliði Sameinuðu þjóðanna í höfuðborginni Kabúl var fluttur burt tímabundið af öryggisástæðum.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira