Líffæraígræðslur til Gautaborgar 27. október 2009 03:00 Undirritun samnings Steingrímur Ari Arason, Álfheiður Ingadóttir og Marika Qvist undirrita samning um ígræðslu líffæra. Að baki þeim standa fulltrúar Sjúkratrygginga, Landspítala, heilbrigðisráðuneytis og Sahlgrenska-háskólasjúkrahússins.
Heilbrigðisyfirvöld hafa undirritað samning um ígræðslu líffæra við Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsið í Gautaborg. Þetta þýðir að líffæraígræðslur Íslendinga flytjast frá Kaupmannahöfn til Gautaborgar um áramótin. Samningurinn var gerður að ósk heilbrigðisráðuneytisins eftir að líffæraígræðslunefnd lagði til að gengið yrði til samninga við Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsið um líffæratöku og ígræðslu líffæra fyrir íslenska sjúklinga. Með samningnum er íslenskum sjúklingum tryggður lágmarksbiðtími eftir ígræðslu líffæra. Biðtími samkvæmt honum er mun styttri en var í fyrri samningi og kostnaður við nýjan samning, miðað við tilteknar forsendur um þörf fyrir líffæri, er rúmar sex hundruð milljónir króna á ári. Gert er ráð fyrir að samningurinn við Sahlgrenska verði um átján prósentum ódýrari en samningurinn sem nú er í gildi. Hann er gerður að undangengnum viðræðum við helstu sjúkrahús á Norðurlöndunum. Samningurinn gildir til ársins 2010 og er til eins árs í senn. Hann framlengist sjálfkrafa um ár sé honum ekki sagt upp sex mánuðum áður en hann á að renna úr gildi.- jss
Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Selenskí mun funda með Trump Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Sjá meira