Innlent

Vill ekki að séra Gunnar snúi aftur

Séra Gunnar Björnsson.
Séra Gunnar Björnsson.
Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar vill ekki að séra Gunnar Björnsson snúi aftur til starfa í Selfossprestakall fyrr en nefndin hefur úrskurðað í málinu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Séra Gunnar á að snúa aftur til starfa 1. júní og yrði fyrsta guðsþjónusta hans í Selfosskirkju 7. júní.

Hæstiréttur sýknaði séra Gunnar 19. mars af ákæru um kynferðislega áreitni gegn sóknarbörnum sínum.

Áður hafa sóknarnefnd Selfosskirkju og fagráð um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar farið fram á að Gunnar snúi ekki aftur til starfa í Selfossprestakall

Fram kom í frétt Rúv að úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar hafi óskað eftir þessu við Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, en hann hefur ekki svarað nefndinni.


Tengdar fréttir

Fagráð vill séra Gunnar ekki til baka

Fagráð um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar er mótfallið því að séra Gunnar Björnsson sóknarprestur í Selfossprestakalli snúi aftur til starfa í kjölfar þess að hann var sýknaður af ásökunum um kynferðisbrot.

Vill fá skaðabætur vegna leyfis sem hann var settur í

Séra Gunnar Björnsson, sem var sýknaður í Hæstarétti af ákærum um kynferðisbrot gegn tveimur sóknarbörnum sínum á unglingsaldri, vill fá greiddar skaðabætur vegna leyfis sem hann var settur í á meðan mál hans var til meðferðar hjá dómstólum. Gunnar mun aftur hefja störf í Selfosskirkju þann 1. maí.

Sr. Gunnar fær ekki að ferma

Biskupsstofa hefur ákveðið í samráði við sr. Gunnar Björnsson, sóknarprest í Selfossprestakalli, að hann taki við embætti sínu 1. júní en ekki 1. maí eins og áður hafði verið tilkynnt. Settur sóknarprestur, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, mun þjóna prestakallinu út maí og annast fermingar sem áformaðar eru í maí.

Segir Gunnar hafa brugðist

Æskulýðssamband þjóðkirkjunnar harmar að séra Gunnar Björnsson hafi fengið að snúa aftur til starfa sem prestur á Selfossi, en hann þjónaði ekki sem prestur meðan ákæra um kynferðisbrot hans var fyrir dómstólum. Hann var sýknaður.

Vilja séra Gunnar ekki aftur

Sóknarnefnd Selfosskirkju hefur ritað biskupi Íslands bréf og óskað eftir því að séra Gunnar Björnsson snúi ekki aftur til starfa við kirkjuna. Hæstiréttur sýknaði séra Gunnar nýverið af ákæru um kynferðislega áreitni gegn sóknarbörnum sínum og hefur biskup tjáð honum að hann geti hafið störf að nýju 1. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×