Engin niðurstaða um gjaldeyrissamninga 3. apríl 2009 06:00 Arnar Sigurmundsson og Hrafn Magnússon funda með fjármálaráðherra í febrúar, ásamt öðrum fulltrúum lífeyrissjóðanna. Samningar standa yfir um hvaða gengi ráði uppgjöri framvirkra gjaldeyrissamninga. fréttablaðið/pjetur
Ekki hefur náðst samkomulag milli bankanna og þeirra sem áttu framvirka gjaldeyrissamninga fyrir fall fjármálakerfisins. Deilt er um á hvaða gengi samningarnir verða gerðir upp og ljóst er að það getur munað tugum milljarða hvert viðmiðunargengið verður. Um fimmtán lífeyrissjóðir voru með framvirka gjaldeyrissamninga í öllum þremur bönkunum og við fall bankanna voru þeir samningar neikvæðir um sem svaraði 70 milljörðum króna. Á móti kemur áttu sjóðirnir skuldabréf á bankana upp á rétt rúmlega 100 milljarða króna. Ekki er sjálfgefið að lífeyrissjóðir eigi bréf í sömu bönkum og gjaldeyrissamningarnir eru í og Arnar Sigurmundsson, stjórnarmaður í Landssamtökum lífeyrissjóða, segir að líka sé hægt að skuldajafna um 40 til 50 prósent af skuldabréfunum gegn samningunum. Sjóðirnir myndu samkvæmt þessu skulda bönkunum um 20 til 30 milljarða vegna samninganna, en eiga 50 til 60 inni hjá þeim í skuldabréfum, sé litið heilt yfir, sem séu kröfur í þrotabú. Þá er hins vegar gert ráð fyrir að framvirku samningarnir séu gerðir upp á genginu sem var þegar bankarnir féllu, en á það hafa bankarnir ekki fallist. Arnar segir lögfræðiálit styðja kröfuna. „Það er orðinn víðtækur skilningur á því að þegar bankarnir féllu voru þeir ófærir um að sinna þessu. Þær viðræður sem í gangi eru hafa beinst að því að ná lendingu sem tæki mið af þeirri staðreynd.“ Arnar segir að ef gjaldeyrissamningarnir hefðu farið í nýju bankana, líkt og ætlað var, hefði vandamálið ekki komið upp. Ákveðið hafi þó verið að skilja þá eftir hjá skilanefndunum. Hrafn Magnússon, formaður Landssamtakanna, segir afnám banns um málsókn gegn fjármálafyrirtækjum ekki breyta miklu. Gert sé ráð fyrir að það sé bankanna að sækja í málinu, en reynt sé að ná samningum um það og sáttatillaga lífeyrissjóðanna gangi út á gengisvísitöluna 175. Hjá sjávarútvegsfyrirtækjum er neikvæð staða á samningunum um 17 milljarðar og heldur minna hjá byggingarfyrirtækjum. Fjárfestingarfyrirtækið Kjalar hefur krafist þess að samningar þeirra verði gerðir upp á gengi Evrópska seðlabankans í október, nær tvöföldu gengi hins íslenska. Kristinn Hallgrímsson lögmaður segir fyrirtækið munu hefja málsókn um leið og færi gefst. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira