Innlent

Erfiðara að nálgast harðari efni

Þórarinn Tyrfingsson
Þórarinn Tyrfingsson

Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi segist eiga vona á aðgerðir lögreglu er varða upprætingu á kannabisræktunum muni skila sér á næstunni í minna framboði á markaði. Samkvæmt nýjustu verðkönnun SÁÁ hefur grammið af kannabis staðið í stað síðustu þrjá mánuði og kostar um 3.400 krónur en amfetamín hefur snarhækkað í verði. Þórarinn segir að amfetamínið hafi hækkað í janúar sem sé óeðlilegt þar sem yfirleitt hafi það gerst í kringum jólin.

Hann segir skýringuna á hækkuninni jafnvel mega rekja til brotthvarfs erlends vinnuafls eða þá að smyglleiðir séu að lokast. Þórarinn segir þetta koma heim og saman við það sem hann hafi heyrt fyrir um tveimur mánuðum að neytendur hafi átt erfiðara með að nálgast harðari efni.

Þórarinn segist hafa litla trú á því að erfiðleikar í gjaldeyrisyfirfærslu sé ástæða þess að minna sé flutt inn af harðari fíkniefnum. Hann segir menn alltaf geta aflað sér gjaldeyris þegar mikið liggi við.

Samkvæmt umræddri könnun kostar grammið af amfetamíni nú 6.980 krónur og hefur hækkað um 1.300 krónur síðan í síðustu könnun.

Þórarinn segir einnig að greinilegt sé að mikið sé af kannabisbirgðum hér á landi því þegar stórar sendingar hafi verið gerðar upptækar virðist það hafa lítil áhrif á markaðinn.

Hann segir menn vanmeta hversu stór og öflugur þessi markaður sé. Hann á þó von á því að aðgerðir lögreglu upp á síðkastið muni skila sér í minna framboði á markaði.

Aðspurður hversvegna hann telji að verð á kannabisefnum hafi haldist síðustu þrjá mánuði segir Þórarinn sömu lögmál gilda á fíkniefnamarkaði og á örðum mörkuðum. Ef seljandinn hækki verðið of mikið sé hætta á því að hann sitji uppi með birgðir. „Þetta heitir eitthvað í hagfræðinni sem ég kann ekki skil á."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×