Semja þarf nýtt seðlabankafrumvarp 13. febrúar 2009 10:07 Birgir Ármannsson.
Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í viðskiptanefnd segir augljóst að fyrirhugað frumvarp um Seðlabankann sé meingallað og að það þarfnist gagngerrar endurskoðunnar. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í gær umsögn um frumvarpið og segir Birgir að sú gagnrýni sem þar birtist sé í takt við það sem sjálfstæðismenn hafi bent á í síðustu viku. „Þessi umsögn frá AGS kom í gær og þegar maður les hana þá áttar maður sig á því hvers vegna þessi vandræðagangur var í forsætisráðuneytinu um síðustu helgi með fyrstu athugasemdir sjóðsins." Birgir segir að athugasemdir AGS lúti að öllum meginatriðum frumvarpsins. „Það má segja að frumvarpið sem slíkt þarf á algjörri heildarendurskoðun að halda, ef við tökum eitthvað mark á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum," segir Birgir og bendir á að hjá sjóðnum starfi færustu sérfræðingar á sviði seðlabankalöggjafar. „Það er meðal annars hlutverk sjóðsins að veita aðildarríkjunum ráðgjöf varðandi skipan mála í seðlabönkum. Þess vegna er það mín skoðun að athugasemdir hans hljóti að hafa mikið vægi." Málið er nú til umfjöllunar hjá viðskiptanefnd en Birgi sýnist einsýnt að byrja þurfi á málinu frá grunni. „Bara byrja upp á nýtt, semja nýtt frumvarp. Vonandi verður þá hægt að standa betur að málum en forsætisráðherrann og ríkisstjórnin hafa gert varðandi þetta frumvarp." Birgir segir þau atriði sem AGS gagnrýnir í umsögn sinni séu í raun þau sömu og sjálfstæðismenn gagnrýndu í umræðum á Alþingi í síðustu viku. „Það er í fyrsta lagi fyrirkomulagið á skipun bankastjórnar. Í öðru lagi menntunarkröfur til bankastjóra og í þriðja lagi fyrirkomulag peningastefnunefndar. Við erum ekki á móti því að það verði stofnuð peningastefnunefnd en við teljum að það verði að hugsa fyrirkomulag hennar alveg upp á nýtt miðað við það sem fram kemur í frumvarpinu." Fundur í viðskiptanefnd hefst núna á ellefta tímanum og þar segist Birgir ætla að koma þessum sjónarmiðum á framfæri. „Við munum fá fjölda gesta til að tjá sig um efnisatriði frumvarpsins og síðan eigum við von á því að skriflegar umsagnir berist eitthvað fram í næstu viku. Ég mun leggja á það höfuðáherslu að menn setjist niður og reyni að hugsa þessi mál upp á nýtt þannig að við fáum nýja seðlabankalöggjöf sem er ekki eitthvað hálfkák heldur til þess fallin að gera Seðlabankann öflugri," segir Birgir Ármannsson.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Sjá meira