Mat á Icesave-ábyrgð kannski of bjartsýnt 13. mars 2009 04:45 Ekki allir eins bjartsýnir. Steingrímur sagði að því miður væri það hluti af samningum okkar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og aðra lánveitendur að við gerðum upp Icesave-skuldbindingarnar.
Mat skilanefndar Landsbankans á því hve stór hluti Icesave-skuldbindinganna mun lenda á íslensku þjóðinni er „háð gríðarlegri óvissu“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. „Og það er rétt að upplýsa að það eru ekki allir aðilar jafnbjartsýnir á þetta mat eins og skilanefnd Landsbankans,“ segir hann. Skilanefndarmenn hafa sagt að vonir þeirra standi til að um 72 milljarðar standi eftir af skuldbindingunum þegar eignir hafa verið seldar að nokkrum árum liðnum. Tekist var á um Icesave-málið á þingi í gær. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hóf utandagskrárumræður um málið, sem hún kallaði „eitthvert mesta óréttlætismál síðari tíma“. Sjálfstæðismennirnir Sigurður Kári Kristjánsson og Pétur Blöndal gagnrýndu stjórnarliða fyrir lausatök í málinu, ekki hafi verið leitað til reyndustu sérfræðinga til að semja um málið við kröfuhafa fyrir Íslands hönd og að svo virtist sem Íslendingar ætluðu einfaldlega að gleypa við þeim kröfum þeim yrðu settar. Stjórnarliðar, ásamt Siv, gagnrýndu sjálfstæðismenn aftur fyrir það sem þeir kölluðu sinnaskipti flokksins í málinu. Flokksmenn hefðu greitt því atkvæði fyrr á árinu að Íslendingar skyldu standa við sínar skuldbindingar og því væri einkennilegt að heyra þá efast um það nú. Þá spurði Siv Steingrím hvort eitthvað ræki á eftir því að niðurstaða fengist fljótt í málið. „Ég held að það sé okkur í hag að vera ekki að ná niðurstöðu of hratt af því að eftir því sem tíminn líður þá held ég að Bretar hljóti að skynja stöðu mála hér og sýna okkur meiri skilning með vaxtakjör og annað.“ Steingrímur svaraði því til að vissulega væri lögð áhersla af hálfu samningsaðila okkar á að málinu yrði hraðað sem mest. Gert hafi verið ráð fyrir að samningaviðræðum lyki á næsta hálfa ári. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira