Ómerktur lögreglubíll myndaði tugi hraðabrota Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 18. júní 2009 20:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarna daga staðið fyrir sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.
Ómerktur lögreglubíll útbúinn hraðamyndavél fylgdist með aksturslagi ökumanna á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn föstudag og þriðjudag að því er fram kemur á vef lögreglunnar. Brot 46 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í Reykjavík en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Vatnsholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 140 ökutæki þessa akstursleið og því óku 33% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 52. Brot 14 ökumanna voru mynduð í Lönguhlíð í Reykjavík en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Drápuhlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 159 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75. Brot 44 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 161 ökutæki þessa akstursleið og því óku 27% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80. Í Lönguhlíð og á Háteigsvegi var hlutfall hraðaaksturs svipað og í mælingum sem fram fóru fyrir ári síðan á sömu stöðum. Mælingarnar eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.
Mest lesið Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal Innlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Erlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Fleiri fréttir Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ 250 þúsund gestir skemmtiferðaskipa á Akureyri í sumar „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Útgerðin misst tengsl við almenning og ómögulegt að fá greiðslumat Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Sjá meira