Erlent

Fimmtíu dagar til stefnu

Gordon Brown.
Gordon Brown.

Leiðtogar heimsins hafa fimmtíu daga til þess að bjarga heiminum. Breskir miðlar greina frá því í dag að þetta verði inntakið í ræðu Gordons Brown forsætisráðherra Bretlands sem hann mun halda í dag í London. Með þessum skilaboðum vill Brown vekja athygli á mikilvægi þess að gripið verði til aðgerða á loftlagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn sem hefst eftir fimmtíu daga.

Að mati Browns stendur heimurinn frammi fyrir gríðarlegum náttúruhamförum af völdum hækkandi hitastigs jarðar og ef ekkert verði að gert muni mannskæðum hitabylgjum, flóðum og þurrkum fjölga mikið. Brown segir að Bandaríkin verði að beita sér meira í þessum málum auk þess sem hann hefur áhyggjur af því hve lítið hafi verið gert til þess að fjármagna aðgerðir sem hamla gegn loftslagsbreytingum í þriðja heiminum.

Á fundinum sem hefst í dag mun Brown ræða við Umvherfisráðherra 17 stærstu iðnríkja heims en sameiginlega eru löndin ábyrg fyrir 80 prósentum af þeim gróðurhúsalofttegundum sem sleppa út í andrúmsloftið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×