Gas gas - fréttamynd ársins 14. mars 2009 15:50 Fréttamynd ársins.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði í dag árlega ljósmyndasýningu Blaðaljómyndarafélags Íslands í Gerðarsafni í Kópavogi. Veitt voru verðlaun fyrir bestu fréttaljósmyndir ársins í sjö flokkum. Fréttamynd ársins var valin ljósmynd sem Pjetur Sigurðsson ljósmyndari Fréttablaðsins tók þegar lögreglan leysti upp mótmæli vörubílstjóra við Suðurlandsveg í apríl eftir að komið hafði til átaka. Hrópið ,,gas, gas" greiptist þar fyrst í vitund þjóðarinnar, en það átti eftir að heyrast oft næstu mánuði.Mynd úr myndaröð ársins. Ráðherrar á Blaðamannafundi.Mynd og myndaröð ársins Viðurkenningu fyrir mynd ársins og myndaröð ársins fékk Kristinn Ingvarsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, sem teknar voru hina örlagaríku sólarhinga 29. september til 9. október.Þá varð ljóst að allir þrír stærstu bankar landsins, Kaupþing, Landsbankinn og Glitnir, glímdu við gríðarlega alvarlegan lausafjárvanda. Gripið var til umdeildra aðgerða af hálfu Seðlabanka, Fjármálaeftirlits og ríkisstjórnar sem miðuðu að því að forða fjármálakerfi landsins frá algeru hruni.Mynd ársins. Lárus Welding og Davíð Oddsson.Lárus Welding, forstjóri Glitnis, og Davíð Oddsson formaður seðlabankastjórnar, á blaðamannafundi í Seðlabankanum 29. október þar sem tilkynnt var að ríkið hefði keypt 75% hlut í bankanum.Skoplegasta mynd ársins.Skoplegasta mynd ársins Auk þess voru veittar viðurkenningar fyrir skoplegustu mynd ársins og þjóðlegustu mynd ársins. Skoplegasta mynd ársins var valin mynd sem Golli, Kjartan Þorbjörnsson, á mMorgunblaðinu tók við setningu prestastefnu 2008 en þá gengu prestar landsins til kirkju í skipulagðri röð og aftastir vígslubiskupar og biskup. Þar fyrir aftan bættist við óvæntur gestur frá fjarlægu stjörnukerfi. Guðmundur Rúnar Guðmundsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu var verðlaunaður fyrir þjóðlegustu mynd ársins. Myndina tók hann þegar rúmlega 30.000 manns söfnuðust saman við Arnarhól til að taka á móti íslenska handboltalandsliðinu og fagna einstæðum árangri þess.Sýningin stendur yfir frá og með 14. mars til 3 maí í Gerðarsafni í Kópavogi.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Sjá meira