Stærði sig af líflegu kynlífi 12. október 2009 05:00 Mekka Mazen Abdul Jawad er búsettur í Jeddah sem er skammt frá Mekka, einni heilögustu borg múslima.
Dómstólar í Sádi-Arabíu hafa dæmt 32 ára gamlan mann í fimm ára fangelsi fyrir að stæra sig af líflegu kynlífi sínu í sjónvarpi. Fangelsisdómurinn dugði þó ekki alveg sem refsing því honum er líka gert að þola þúsund svipuhögg. Mazen Abdul Jawad, fjögurra barna faðir, fór mikinn í þættinum „Þykka rauða línan“ sem er á dagskrá líbanska sjónvarpsins. Hann talaði um unað sinn af kynlífi og lýsti því þegar hann missti sveindóminn fjórtán ára gamall. Þá var hann myndaður í svefnherberginu umkringdur leikföngum ástalífsins. Þættinum lauk þar sem Jawad var fylgt eftir í ökuferð um stræti borgarinnar Jeddah, sem er skammt frá Mekka, í leit að vænlegum kvenkosti. Þessi opinberun Jawads fór svo fyrir brjóstið á sádi-arabískum yfirvöldum að hann var dæmdur og útibúi líbönsku stöðvarinnar í Jeddah og Riyadh lokað. Jawad var dæmdur eftir íslömskum sharia-lögum en samkvæmt þeim er samneyti karla og kvenna mjög takmarkað. Þá mega karlar ekki stunda kynlíf áður en þeir ganga í það heilaga. Áður en dómur féll hafði Jawad beðist afsökunar. Einnig sakaði hann líbönsku sjónvarpsstöðina um að taka ummæli hans úr samhengi. - th
Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira