Samskipti ríkjanna enn stirð 12. október 2009 05:00 Undirritun samninga Edouard Nalbandian, utanríkisráðherra Armeníu, og Ahmet Davutoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, undirrituðu tímamótasamning í Sviss á laugardag.nordicphotos/AFP
Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, segir að Armenar verði að yfirgefa Nagorno-Karabach, fjallahérað í Aserbaídsjan sem að mestu er byggt Armenum. Þetta sagði hann í gær, daginn eftir að Tyrkland og Armenía undirrituðu samning um að hefja stjórnmálasamskipti á ný eftir sextán ára hlé. Samningur Tyrklands og Armeníu á laugardag þykir sögulegur, því samband ríkjanna hefur áratugum saman verið ákaflega stirt. Tyrkir hafa aldrei viljað fallast á að fjöldamorð Tyrkja á Armenum fyrir tæpri öld geti fallið undir þjóðarmorð. Auk þess hafa þjóðirnar deilt hart um hernám Armena á Nagorno-Karabach árið 1993. Samningur Tyrkja og Armena var undirritaður á laugardag, en fram á síðustu stundu stóðu yfir deilur um orðalag í yfirlýsingum beggja ríkjanna, sem gefa átti í kjölfar undirritunar samningsins. Sú deila var leyst með því að hvorugt ríkið sendi frá sér yfirlýsingu. Óvíst er hvort ummæli Erdogans um að Armenar verði að láta Nagorno-Karabach af hendi setji samskipti ríkjanna í uppnám að nýju. Aserar segja hins vegar að endurupptaka stjórnmálasambands Tyrkja og Armena varpi skugga á annars nána vináttu Tyrkja og Asera.- gb
Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Erlent Fleiri fréttir Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Sjá meira