Reyndi að komast inn til Berlusconi með hníf Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. desember 2009 07:29 Silvio Berlusconi.
Mikið mæðir á Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, þessa dagana en vopnaður maður reyndi í gær að lauma sér inn á sjúkrastofu hans. Maðurinn var gripinn glóðvolgur í gær þegar hann reyndi að komast inn í herbergið þar sem Berlusconi liggur slasaður eftir að óður maður grýtti kirkjulíkneski í andlit hans á sunnudaginn. Að sögn ítalskra fjölmiðla var maðurinn, sem handtekinn var í gær, með hníf á sér og er ekkert vitað hvað honum gekk til en það hefur varla verið gott. Berlusconi verður á sjúkrahúsinu að minnsta kosti til loka dagsins í dag en hann kvartar yfir verkjum í hálsi og er auðsjáanlega enn verulega lerkaður eftir árásina að sögn lækna hans. Þá mun hann hvíla sig á öllum stjórnmálaátökum í mánuð eftir að hann losnar af sjúkrahúsinu. Berlusconi er allt annað en vinsæll á Ítalíu og hefur fjöldi haturssíðna sprottið upp á Netinu honum til höfuðs. Innanríkisráðherrann Roberto Maroni veit ekki sitt rjúkandi ráð yfir ástandinu og íhugar að banna síðurnar en það er lögbrot vegna ákvæða um tjáningarfrelsi. Hann hyggst því setja reglugerð sem veitir stjórnvöldum leyfi til að loka netsíðum af öryggisástæðum en vafasamt er hvort hún gangi framar lögum. Til að setja punktinn yfir i-ið á Berlusconi yfir höfði sér ákæru vegna umfangsmikilla skattsvika sem hann er grunaður um.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira