Byssumaður á sjúkrahúsi 7. nóvember 2009 04:00 Höfuðstöðvar hersins í Fort Hood. Lögreglubifreið fyrir utan bygginguna þar sem Hasan hóf árásirnar. Nordicphotos/AFP
Nidal Malik Hasan, majór í bandaríska hernum, var fluttur á sjúkrahús strax á fimmtudagskvöld eftir að hann hafði drepið þrettán manns og sært tugi annarra í herstöðinni Fort Wood í Texas. Lögreglan hugðist yfirheyra Hasan strax og heilsufar hans leyfði, en hann var ekki talinn í lífshættu. Árásin kom þeim sem þekktu hann mjög á óvart. Hasan er 39 ára gamalla múslimi sem hafði stundað læknisnám á vegum hersins og sérhæfði sig í geðlækningum með áherslu á áföll og forvarnir. Bænaleiðtogi í mosku, sem Hasan sótti reglulega, sagði hann ekki hafa aðhyllst öfgaskoðanir af neinu tagi. Hann hafi lagt metnað í hermennskuna og oft klæðst herbúningnum við bænahald. Hasan fór samt ekki dult mað andstöðu sína við hernað Bandaríkjanna í Afganistan og Írak. Hann hafði gert sér vonir um að Barack Obama Bandaríkjaforseti myndi kalla herinn heim frá báðum þessum löndum, og átti stundum í deilum við aðra í hernum sem styðja stríðsreksturinn. Fyrir hálfu ári vakti Hasan að vísu athygli lögreglunnar vegna netskrifa um sjálfsvígsárásarmenn, þar sem þeir voru meðal annars lagðir að jöfnu við hermenn sem fleygðu sér yfir handsprengju til þess að bjarga lífi félaga sinna. Málið hafði ekki verið rannsakað og ekki er staðfest að hann hafi í raun skrifað þetta. Fyrir stuttu var honum svo tilkynnt að senda ætti hann úr landi. Heimildarmenn innan hersins segja að hann hafi átt að fara til Íraks. Mikil ringulreið varð í herstöðinni þegar hann tók að skjóta á fólk skömmu eftir hádegi á læknamiðstöð þar sem hermenn, sem annað hvort eru á leið í hernað erlendis eða nýkomnir til baka, gangast undir læknisskoðun. Nokkur vitni segja hann hafa hrópað eitthvað um mikilfengleika guðs þegar hann hóf skothríðina. Í fyrstu var talið að Hasan hafi látist í átökunum, en síðar kom í ljós að hann var á lífi. Ekki var heldur talið útilokað að sumir hinna látnu hefðu orðið fyrir skotum úr byssu Hasans heldur frá öðrum sem brugðust við og skutu til baka. Ótrúlegt þykir að honum hafi tekist að drepa og særa svo marga. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira