Fundu kannabis í bíl á Blönduósi 8. apríl 2009 06:18
Um klukkan tíu í gærkvöldi var bifreið á norðurleið stöðvuð af lögreglunni á Blönduósi er hún var á leið í gegnum bæinn. Ástæða stöðvunarinnar var reglubundið „tékk" eins og segir í tilkynningu. Í bílnum fannst hinsvegar töluvert magn af fíkniefnum og sennilega um einn stærsta fíkniefnafund bæjarins að ræða hingað til. „Um borð í bifreiðinni voru tveir karlmenn á þrítugsaldri. Grunur kviknaði um að þeir hefðu óhreint mjöl í pokahorninu og gáfu þeir heimild til leitar í bifreiðinni. Við leitina kom í ljós pakki sem falinn var í bifreiðinni. Reyndist hann innihalda á fjórða hundrað gramma af kannabisefnum þ.e.a.s. marihuana. Mennirnir voru handteknir og færðir til yfirheyrslu á lögreglustöðinni á Blönduósi," segir í tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi. „Að þeim loknum voru þeir frjálsir ferða sinna eftir að annar þeirra hafði viðurkennt eign sína á efnunum. Að auki er ökumaður bifreiðarinnar grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Er þetta með stærri fíkniefnamálum sem að upp hafa komið hjá lögreglunni á Blönduósi. Ljóst var á öllum umbúnaði efnanna að þau voru ætluð til sölu og dreifingar á Akureyrarsvæðinu. Eru lögreglumenn á Blönduósi því ákaflega stoltir af því að hafa komið í veg fyrir þá ætlan," segir að lokum.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Fleiri fréttir Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum Sjá meira