Vinnuvélarnar gera engum gagn á hafnarbakkanum 3. desember 2009 06:00 Á geymslusvæði Lýsingar við Hafnarfjarðarhöfn getur að líta fjölmarga vörubíla og ótal gröfur sem bíða þess að hægt verði að koma þeim í verð. Í flestum tilvikum er um að ræða tæki sem fyrirtækið hefur þurft að leysa til sín vegna greiðsluvandræða kaupenda. Fréttablaðið/GVA
Verkefnaskortur innanlands og samdráttur í viðskiptalöndum okkar gerir að erfiðlega gengur að koma í verð vinnuvélum og ökutækjum sem fjármögnunarfyrirtæki hafa þurft að leysa til sín. „Við erum ekkert að senda út úr landinu eins og er,“ segir Guðrún S. Björnsdóttir, markaðsstjóri Lýsingar. „Markaðirnir í Evrópu hafa dregist saman og þar með eftirspurnin og verð er eftir því,“ segir hún en kveðst þó vonast til að sem fyrst megi koma einhverjum af þessum tækjum í verð. „Þetta gerir engum greiða þarna á hafnarbakkanum.“ Guðrún segir erfitt að segja til um þróunina í því hvort fyrirtækið þurfi að leysa mikið til sín til viðbótar af farartækjum eða vinnuvélum. „Það hafa ekki verið neinar sveiflur í þessu og allt frá hruni reynt að koma til móts við fólk eftir megni, svo sem með frystingu lána og frestunum. Það hjálpar mjög mörgun, en því miður eru það verstu dæmin sem lenda í þessu.“ Þá segir Guðrún ekki útlit fyrir að mikil hreyfing komist á markað með vinnuvélar í bráð. „Meðan verkefni eru fá er lítil þörf fyrir tækin,“ segir hún en kveður um leið nokkra hreyfingu á markaði með notaða bíla. Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP-fjármögnunar, hefur líka orð á skorti á markaði fyrir notaðar vinnuvélar og þar hjálpi ekki til að ríkið sé hætt að bjóða út ný verkefni. Einhver markaður sé þó til staðar í Evrópu. „Það selst alltaf, en samt aldrei á nógu háu verði til að dugi fyrir skuldinni, því markaðurinn er slæmur úti líka,“ segir hann. Kjartan kveðst hins vegar vonast til þess að mesti skaflinn sé að baki í að taka tæki til baka. Hann segir þó að nokkrar sveiflur geti verið í þeim málum, svo sem ef taka þurfi tæki hjá stórum verktökum líkt og nýverið hafi gerst. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Fleiri fréttir Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Sjá meira