Innkalla milljónir bíla vegna gólfmottu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. september 2009 08:07
Toyota í Bandaríkjunum mun innkalla tæplega fjórar milljónir bíla vegna hættulegra gólfmotta. Vandamálið lýsir sér þannig að lausar gólfmottur við bílstjórasætið eiga það til að lyftast upp og þrýsta bensíngjöfinni niður. Leikur grunur á að þetta hafi valdið slysum sem kostað hafi allt í allt fimm manns lífið sem komið er. Þetta kemur langt í frá á besta tíma fyrir Toyota sem barist hefur í bökkum vegna sölusamdráttar víða um heim, ekki síst í Bandaríkjunum. Ray LaHood, samgönguráðherra Bandaríkjanna, segir málið mjög brýnt, vitað sé um 100 tilvik þar sem mottan hafi ýtt á bensíngjöfina og af þeim tilfellum hafi sautján endað með árekstri. Alls þarf að innkalla 3,8 milljónir Toyota-bíla með tilheyrandi kostnaði og lækkuðu hlutabréf í Toyota um 1,1 prósent í morgun þegar fregnirnar spurðust út. Stærsta innköllun Toyota hingað til var á 900.000 bílum árið 2005 vegna bilunar í stýrisbúnaði en vandinn er meiri í þetta skiptið. Ekki er nema mánuður síðan lögreglumaður á frívakt lést ásamt þremur úr fjölskyldu hans í San Diego þegar mottan í glænýjum Lexus sem hann ók festi bensíngjöfina og bíllinn fór út af veginum á 193 kílómetra hraða.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira