Framkvæmdum hraðað við ofanflóðavarnir 6. apríl 2009 15:37 Frá íbúafundi á Neskaupsstað.
Í kjölfar tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðherra sem samþykkt var í ríkisstjórn um að framkvæmdum við ofanflóðavarnir verði hraðað, hefur ofanflóðanefnd óskað eftir heimild fjármálaráðuneytisins til að bjóða út framkvæmdir við varnargarða í Neskaupstað og í Ólafsfirði. Umhverfisráðherra lagði til við ríkisstjórn að tæpum 1.100 milljónum króna yrði varið í ofanflóðavarnir til viðbótar við þær tæpar 700 milljónir sem ákveðið var að veita í málaflokkinn samkvæmt fjárlögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisráðuneytinu. Þar segir ennfremur að gert sé ráð fyrir að framkvæmdir muni standa yfir næstu fjögur árin í Neskaupstað en ljúki að mestu á þessu ári í Ólafsfirði. Ætla má að framkvæmdirnar í Neskaupstað og Ólafsfirði muni skapa hátt í 200 ársverk. „Nú er unnið að útboði vegna upptakastoðvirkja í Neskaupstað. Tilboði í hönnun og smíði þeirra hefur þegar verið tekið en uppsetning verður boðin út á næstunni. Íbúafundir voru haldnir í Ólafsfirði og í Neskaupstað í liðinni viku þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir voru kynntar af Hafsteini Pálssyni, verkefnastjóra ofanflóðanefndar og hönnuðum framkvæmdanna. Þar gafst íbúum sveitarfélaganna einnig kostur á að fá svör við spurningum um fyrirhugaðar framkvæmdir. Ofanflóðanefnd hefur með samþykkt ríkisstjórnarinnar jafnframt fengið heimild til að vinna að auknum framkvæmdum í Bolungarvík á árinu og til að hefja framkvæmdir við næsta áfanga snjóflóðavarna á Ísafirði. Áætlað er að 30 ný ársverk skapist í tengslum við þessar auknu framkvæmdir. Þess má geta að nú er unnið að framkvæmdum við ofanflóðavarnir í Ólafsvík og Bíldudal auk fyrrgreindra framkvæmda í Bolungarvík. Miðað er við að ljúka framkvæmdum í Ólafsvík og Bíldudal að mestu leyti á árinu."
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Sjá meira