Þór Sigfússon er farinn í frí 9. júlí 2009 18:18
Vefsíða Samtaka atvinnulífsins segir að Þór Sigfússon, formaður SA, hafi ákveðið að taka sér leyfi frá störfum sem formaður Samtaka atvinnulífsins um óákveðinn tíma, frá og með 9. júlí, þar til mál skýrast varðandi stöðu hans í rannsókn sérstaks saksóknara á fjárfestingarstarfsemi Sjóvar. Þetta kemur fram í bréfi Þórs til félagsmanna SA en greint var frá rannsókninni á vef SA. Þór segist telja að störf hans hjá Sjóvá hafi í einu öllu verið í samræmi við lög enda hafi hann unnið af metnaði og bestu samvisku fyrir fyrirtækið. Honum sé umhugað um að starfsemi SA gangi eins vel og kostur er og vilji á engan hátt að samtökin verði fyrir skaða vegna fyrrgreindrar rannsóknar sem sé þeim algjörlega óviðkomandi. Bréfið er svohljóðandi: „Sérstakur saksóknari hefur nú hafið rannsókn á fjárfestingastarfsemi Sjóvár þar sem ég var forstjóri þangað til undir lok maí sl. Ég hef lýst því yfir í fjölmiðlum að ég telji að störf mín fyrir Sjóvá hafi í einu og öllu verið í samræmi við lög enda vann ég af metnaði og bestu samvisku fyrir fyrirtækið. Mér er umhugað um að starfsemi Samtaka atvinnulífsins gangi eins vel og kostur er og vil á engan hátt að samtökin verði fyrir skaða vegna þessarar rannsóknar sem er þeim algjörlega óviðkomandi. Því hef ég ákveðið að taka mér leyfi frá störfum frá 9. júlí sem formaður Samtaka atvinnulífsins um óákveðinn tíma þangað til mál skýrast varðandi stöðu mína í rannsókns sérstaks saksóknara." Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira