Einstök björgun: Fórnaði sér svo tengdasonur gæti lifað 26. desember 2009 14:57 Leitað að Guðmundi. Hann fannst að lokum í bátnum.
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðabæ, sagði frá ótrúlegu afreki Guðmundar Sesars Magnússonar í predikun sinni á aðfangadegi en hann lést í sjóskaða utan Fáskrúðsfjarðar þann 16. desember. Þá sökk 15 tonna plastbátur eftir að hann fékk brot á sig. Með Guðmundi um borð var tengdasonur hans, Ívar Smári Guðmundsson. Hann komst af eftir að Guðmundur fórnaði sér fyrir hann. Frásögn Jónu var í samráði við aðstandendur Guðmundar og hófst á þessum orðum: Örlög þrungin merkingu „Kæri söfnuður, á þessu aðfangadagskvöldi hef ég umboð til að færa ykkur sérstaka gjöf. Eins og þjóðin veit varð sá hörmungaratburður miðvikudaginn 16. desember sl. að bát hvolfdi úti fyrir mynni Fáskrúðsfjarðar. Um borð voru tveir menn, tengdafeðgar. Sá yngri komst lífs af en sá eldri lést. Eiginmaður minn, sr. Bjarni Karlsson þjónar þessari fjölskyldu í sorg þeirra og veið fengum leyfi ástvinanna til að greina frá þeirri lærdómsríku atburðarás sem tengist slysinu, lífbjörg unga mannsins og lífi og dauða tengdaföðurins Guðmundar Sesars Magnússonar. Stundum er lífið sjálft stærra í sniðum en nokkurn hefði órað fyrir og mannleg örlög svo þrungin merkingu að maður gerir rétt í því að staldra við. Hér er slík saga." Jóna lýsti því þegar Guðmundur Sesar auk Ívari Smára í félagi við mág Guðmundar, sem var ekki með í för, stofnuðu útgerð. Bátinn höfðu þeir keypt nýlega og loks var að því komið að sækja hann til Vopnafjarðar og sigla honum heim til Hafnarfjarðar þar sem fjölskyldan býr.Hvolfdi í ólgandi hafið „Raunar er það þekkt að úti fyrir Austfjörðum mætast oft miklir hafstraumar og stundum hafa jafnvel stærri skip lent í vanda á þessu svæði austan við Skrúð sem sjómenn nefna Brökur. Þá leita sterkir straumar upp á yfirborðið svo að hafið ólgar og brestur allt í kring. Þeir höfðu haft orð á því hvor við annan hve vel báturinn færi í hafi og hve stöðugur hann væri að sigla honum. Fyrirvaralaust kom stór alda bakborðsmegin á bátinn svo að Sesari og Ívari brá mjög við óvænt höggið uns önnur margfalt stærri reið að stjórnborðsmegin án minnsta fyrirvara og færði bátinn umsvifalaust á hvolf ofan í ólgandi hafið," lýsir Jóna hinu hræðilega slysi. Svo segir hún frá því að Guðmundur Sesar hafi verið lífsreyndur maður en sjálfur hafði hann misst föður sinn tveggja ára gamall. Þá drukknaði hann til sjós. Hlakkaði til fyrstu jólanna með fjölskyldunni Svo segir í predikun Jónu: „Er bátnum hvolfdi fossaði sjór inn í stýrishúsið og náðu þeir Sesar og Ívar að komast niður í vélarrúmið sem nú snéri upp og finna þar súrefni til að anda að sér á meðan þeir gætu náð áttum í ísköldum sjó og þreifandi myrkri. Þeir fundu hvor annan og ræddu saman í þögninni sem skollið hafði á um leið og vélin drap á sér þar sem báturinn marraði í kafi á ókyrrum haffletinum. Ítrekað skiptust þeir á að leita útgöngu með því að kafa niður í stýrishúsið og leita útleiðar í svarta myrkri og olíumenguðum sjó en allt kom fyrir ekki. Er vatnsborðið hækkaði og náði þeim undir höku héldu þeir uppgefnir hvor í annan og báðu saman Faðirvor. Sesar hafði orð á því að nú væri stund þeirra komin og þeir skyldu þá reyna að deyja eins og menn. Og enn var beðin bæn frelsarans, Faðir vor. Þá segir Ívar við tengdaföður sinn: „Og ég sem hlakkaði til að eiga fyrstu jólin með syni mínum og konunni."„Þá skaltu lifa!" Það var þá sem það gerðist. „Þar sem þeir héldu hvor í annars hægri hönd með olíubrákað sjóvatnið undir höku en með þeirri vinstri héldu þeir við hnakkann hvor á öðrum. „Og ég sem hlakkaði til að eiga fyrstu jólin með syni mínum og konunni." mælti Ívar. Þá horfði Sesar inn í augu hans í myrkrinu og sagði: „Þá skaltu líka lifa! Þú getur komist niður gatið, inn í stýrishúsið og út!" Við svo búið setti hann hönd ofan á hvirfil tengdasonar síns og ýtti honum af afli niður í átt að útgönguleiðinni." Slysið varð rétt rúmlega sjö um morguninn og úti var niðamyrkur. Öll ljós höfðu dáið í bátnum þegar hann hvolfdi. Guðmundur Sesar fórnaði sér svo tengdasonur hans gæti haldið jól með fjölskyldu sinni. „Er Ívar kom svamlandi í 4°C köldum sjónum inn í stýrishúsið þá var þar allt baðað hvítri birtu svo að ratljóst var og hann sá gluggann með lokunni stjórnborðsmegin. Á þeirri stundu fann hann hvorki fyrir kulda né súrefnisskorti, hugsun hans var einbeitt og skýr er hann tók í lokuna og opnaði gluggann sem rétt var nógu breiður svo að hann gæti rennt sér út um hann klæddur í peysu og föðurland. Er Ívar skaut höfðinu upp úr sjónum og dró að sér ferskt loftið fann hann mátt sinn aukast svo að hann hóf að klifra upp á kjöl bátsins og þótt aldan slæi hann ítrekað niður. Komst hann loks upp og gat skorðað sig. Heyrði hann þá nafn sitt hrópað innan úr bátnum og gat svarað og hvatt Sesar til að reyna sömu útgöngu." Himnasending? Þar sem Ívar beið uppi á kili bátsins fáklæddur og blautur í vetrarmyrkrinu gerði hann sér grein fyrir því að staða hans var síst orðin betri því hér myndi hann krókna úr kulda. „Þá hrópaði hann á Guð og spurði hann hvað hann meinti með þessu, og fyrir hvað hann væri þá að refsa sér með því að leyfa honum að komast þetta langt en deyja svo?! Er hann þá skimaði niður að glugganum til að sjá hvort tengdafaðir hans kæmi svo hann gæti tekið í hönd hans kom eitthvað skyndilega á mikill ferð út um gluggann upp úr sjónum og rakleitt í fangið á Ívari svo að honum brá við og hugðist varpa því frá sér uns hann gerði sér grein fyrir því að hann hélt á björgunargalla, sterkri og skjólgóðri flík sem nota skal við aðstæður sem þessar. Veit hann engar hefðbundnar skýringar á þeirri sendingu," segir í predikun Jónu Hrannar. Tengdasonurinn bjargaðist Nú tók við atburðarrás þar sem reyndi á lærð handtök er hann klæddi sig í gallann, losaði björgunarbátinn og komst þar um borð til að senda frá sér merki með blysum og neyðarbauju. Frá þeirri stundu er bátnum hvolfdi til þess tíma er kviknaði á neyðarbaujunni liðu 40 mínútur. Alls liðu svo þrír og hálfur tími uns hjálp barst og Ívari var bjargað um borð í fiskibát. Lík Sesars fannst í vélarrúmi bátsins er hann var dreginn til hafnar í Fáskrúðsfirði. Brotnir geislabaugar Að lokum segir í predikun Jónu Hrannar: „Ef einhver fjölskylda á Íslandi veit og skynjar nú um þessi jól hve dýrmæt fórnargjöf lífið er, þá er það fjölskylda Guðmundar Sesars Magnússonar. Í dýpsta eðli sínu er lífið fórnargjöf. Þeim sannleika lýsa jólin. Jólaguðspjallið, sagan um sendingu Guðssonarins inn í heiminn, segir okkur einmitt það. Lífið sem við eigum hér á jörð er heilagt og dýrmætt vegna þeirrar fórnar sem færð hefur verið og besta leiðin til þess að lifa er sú að vera þakklátur. Reynsla þessarar fjölskyldu er einstök og sagan er merk en fjölskyldu Sesars er umhugað um að enginn haldi að hann hafi verið einhver dýrlingur. „Við höfum nú frekar brotna geislabauga prestur minn." Sagði Oddrún við mig er við ræddum saman um efni þessarar ræðu. Já, jólin eru handa okkur öllum sem höfum brotna geislabauga. Gæfa Sesars var sú að hann átti hlutdeild í hugarfari Krists, lífið hafði leitt hann að uppsprettu sinni, fórninni. Saman fluttu þeir orð frelsarans á ögurstundu og fólu sig á vald Guði; „…verði þinni vilji…þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu." Og er Ívar lýsti yfir lífsvilja sínum fékk frelsarinn enn að eiga orðið er Sesar mælti fram vilja Guðs og sendi hann að svo mæltu út í lífið þar sem barnið hans beið. Í kvöld bíður þín nýfætt barn. Þín er beðið. Langar þig að lifa í þágu þess? Þá áttu gleðileg jól." Hægt er að lesa predikun Jónu Hrannar í heild sinni hér.
Mest lesið Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Innlent Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Erlent Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Innlent Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Innlent Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma Innlent Yfirvöld Mexíkó kæra Google Erlent Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Innlent Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent Fleiri fréttir Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Víðfeðm rannsókn, baunað á skólaþorp á bílastæði og stórvirki Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma „Enn sem er komið er staðan óbreytt og orð Sönnu ósönn“ Munu geta aðgreint fanga eftir alvarleika brota í nýju fangelsi Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Ólafur Þór segir ekki tilefni til afsagnar Túnin aftur rennandi blaut en spáð hlýindum í næstu viku Framkvæmdir á hólmanum í fullum gangi Þingmenn slá Íslandsmet Krefst svara frá MAST vegna eftirlits með blóðmerum Kristrún ræddi við Trump og Selenskíj á fundi JEF-ríkja Jákvæður tónn í Norðurþingi um samstarf við Carbfix Íslandsmet á Alþingi og saksóknarar gagnrýndir Telur að Ólafur Þór og Sigríður hljóti að víkja við rannsókn málsins „Þetta er vondur klukkutími hér í þessum þingsal“ Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Skipulögð brotastarfsemi er komin til að vera Skilríkjalaus og með fíkniefni „Hún er albesti vinur minn“ Loftslagsmál sitji á hakanum vegna stríða og heimsfaraldurs „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Sjá meira
Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent
Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent