Boðflenna beit afmælisgest 5. september 2009 09:29 Mikill erill var í miðborginni í nótt.
Um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt í nótt barst lögreglu tilkynning um slagsmál á skemmtistað í austurhluta borgarinnar en um einkasamkvæmi var að ræða. Þrír karlmenn mættu óvelkomnir í afmælisveislu og bitu einn gestinn. Dyraverðir staðarins bentu á mennina og rak lögregla þá út af staðnum. Nokkrir afmælisgestir voru ósáttir við þá ákvörðun lögreglu og létu skap sitt bitna á lögreglumönnunum. Á endanum voru þrír afmælisgestir handteknir en einn þeirra greip í klof lögreglumanns, annar otaði brotnu bjórglasi að öðrum og sá þriðji veittist að lögreglumanni sem reyndi að handtaka þann fyrsta. Þessir þrír gista nú fangageymslur lögreglunnar. Um miðnætti var síðan brotist inn í glerauganverslun Blindrafélagsins í Hamrahlíð. Þjófarnir sópuðu varningi í svartan ruslapoka og hlupu í átt að Öskjuhlíðinni. Tilkynnandi sem kom að mönnum elti þá á hlaupum og hentu þeir þá þýfinu frá sér við Hlíðarskóla. Mennirnir komust undan en varningurinn náðist óskemmdur. Þá var hreinsað út úr fjölmennu partýi á Sævangi í Hafnarfirði, skrúfað frá brunahana í Kauptúni og síðan var tilkynnt um innbrot í Breiðholtsskóla rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Rúða hafði verið brotin en fjórir aðilar á aldrinum 14-17 ára voru gómaðir skammt frá. Tveir þeirr viðurkenndu að hafa brotist inn í skólann en fartölva fannst í fórum þeirra. Sú tölva var úr Waldorfskóla í Hraunbergi en síðar kom í ljós að einnig hafði verið brotist þar inn. Einnig var brotist inn á hárgreiðslustofu í Eddufelli rétt fyrir klukkan fjögur. Þjófurinn hefur verið eitthvað ósáttir með hárgreiðsluna því hann nældi sér í hárgel. Stífgelaði þjófurinn hefur ekki enn fundist. Að sögn lögreglu var mikill erill í bænum í nótt og mikið af fólki. Ein líkamsárás var tilkynnt og var þolandinn fluttur á slysadeild með skurð á hálsi. Að sögn hjúkrunarfólk mátti litlu muna að verr færi en maðurinn var skorinn með brotinni flösku. Vitað er hverjir gerendurnir eru.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Sjá meira