Jón Ásgeir fellur niður um klassa Valur Grettisson skrifar 9. mars 2009 13:07 Jón Ásgeir ferðast á milli landa með Economy comfort.
Auðkýfingurinn Jón Ásgeir Jóhannesson flaug til Englands í síðustu viku en athygli vakti að hann nýtti sér ekki lúxus rýmið Saga Class, heldur flaug hann á Economy Comfort. Á heimasíðu Icelandair er ferðamátanum lýst svona: Economy Comfort er almennur fargjaldaflokkur þar sem farþegar er boðið upp á meiri þjónustu og meira rými en á almennu farrými. Einungis eru fjögur sæti í hverri sætaröð í stað sex á almennu farrými auk þess sem lengra bil er á milli sæta sem gefur meira pláss fyrir fætur. Economy Comfort hentar því vel til viðskiptaferða. Boðið er uppá máltíð og eru óáfengir drykkir, léttvín og bjór innifalið. Samkvæmt heimildum Vísis var Jón Ásgeir afundinn þegar á fluginu stóð og lét lítið fyrir sér fara. Hann hefur hingað til verið þekktari fyrir að fljúga á milli landa í glæsilegri einkaþotu. Economy Comfort er skör neðar en Saga Class, sem er besti fáanlegi ferðamátinn á milli landa með flugfélaginu Icelandair. Þess má þó geta að fljúgi menn með Economy Comfort innan Evrópu þá gefur það sex þúsund til sjö þúsund vildarpunkta. Ef farþegi flýgur til Norður-Ameríku þá fær sá hinn sami rúma áttaþúsund til tæplega tíu þúsund vildarpunkta. Efnahagshrunið hefur komið illa við Jón Ásgeir og fjölskyldu. Baugur er kominn í greiðslustöðvun en fyrir helgi sótti félagið eftir framlengingu á greiðslustöðvuninni í Héraðsdómi Reykjavíkur. Íslandsbanki og gamli Glitnir lögðust gegn því og vildu félagið í þrot. Málinu var því frestað þar til í morgun, en þá fór málflutningur fram.
Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira