Sendir flugherinn á veðrið Óli Tynes skrifar 20. október 2009 16:39
Það snjóar býsnin öll í Moskvu á veturna. Það bæði truflar umferð og kostar höfuðborg Rússlands heilan helling af rúblum á ári hverju í snjóhreinsun. Jafnfallinn snjór í Moskvu getur verið sextíu sentimetrar í góðum byl. Risastórt batterí er til þess að takast á við þetta. Það eru fimmtíu þúsund götusóparar, fimmþúsund og áttahundruð trukkar og tuttugu og sjö tröllvaxnar snjóbræðslustöðvar. Yuri Luzhkov borgarstjóri hefur nú sagt veðrinu stríð á hendur. Í orðsins fyllstu merkingu. Flugherinn kallaður út Hann ætlar að senda rússneska flugherinn á móti snjóbyljum sem stefna á borgina. Flugherinn á að dreifa þurrum ís og joði yfir óveðursskýrin til þess að leysa þau upp. Með þessu telur borgarstjórinn sig geta minnkað snjókomuna í Moskvu um tuttugu prósent. Það myndi mjög auðvelda alla umferð og spara borginni fjórar milljónir dollara í hreinsunarkostnað. Það er eiginlega hægt að segja að með þessu sé Luzkov að herða stríð sitt gegn veðurguðunum. Hann hefur þegar gert tilraunir með það á sumrin að eyða skýjum sem stefna skrúðgöngum hans í hættu. Þorpin kaffærð Ekki eru allir hrifnir af þessum stríðsreksti borgarstjórans. Ekki umhverfissinnar og ekki íbúar í litlum þorpum í kringum Moskvu. Það liggur nefnilega í hlutarins eðli að ský sem eru leyst upp falla til jarðar með allan sinn snjó. Beint ofan á litlu þorpin.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira