Vill að Eykt upplýsi um styrki til flokka 29. október 2009 07:33
Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi ætlar að leggja fram tillögu þess efnis á borgarráðsfundi síðar í dag að skorað verði á byggingarfélagið Eykt að upplýsa um framlög sín og styrki til stjórnmálasamtaka sem buðu fram í síðustu borgarstjórnarkosningum. Þá vill Ólafur jafnframt að upplýst verði hvaða frambjóðendur í prófkjörum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar fengu styrki frá félaginu og hvort aðrir styrkir hafi runnið til frambjóðenda og kjörinna fulltrúa í borgarstjórn á þessu kjörtímabili. Tillagan er fram komin vegna frétta þess efnis að Eykt hafi verið fengið til að annast uppsteypu brunahúsanna svokölluðu í Austurstræti án þess að hafa átt lægsta tilboð í verkið. Framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Fonsa sakaði framsóknarmenn nýverið í fréttum Stöðvar 2 um pólitíska spillingu og sóðaskap í tengslum við útboðið og útilokaði ekki að málið yrði kært, en Fonsi átti lægsta tilboðið í verkið. Eykt átti næst lægsta tilboðið og fékk verkið þar sem tilboð Fonsa þótti ekki uppfylla reglur útboðsins. Framkvæmdastjóri Fonsa sagði augljóst að útboðið hafi verið fyrirfram ákveðið og ljóst að Eykt ætti að fá verkefnið. Vísaði hann meðal annars til þess að Eykt hafi borgað í kosningasjóð framsóknarmanna á sínum tíma. Þessu hafa Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, og Hallur Magnússon, formaður innkauparáðs Reykjavíkurborgar og fulltrúi framsóknarmanna í ráðinu, vísað á bug.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira