Gjörgæsludeildir fullar: Bætt við tækjakost spítalans 29. október 2009 15:49 Landspítali
Líkt og greint var frá fyrr í dag var Landspítalinn færður á svokallað virkjunarstig viðbragðsáætlunar spítalans klukkan 10:00 í morgun, samkvæmt ákvörðun forstjóra LSH. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem slíkt gerist en virkjunarstig er næstefst af fjórum viðbragðsstigum viðbragðsáætlunarinnar. Á hádegi í dag voru 35 inniliggjandi á Landspítala vegna inflúensu A(H1N1), þar af 8 á gjörgæslu. Auk þess hefur verið mikið um önnur alvarleg veikindi og slys sem hafa krafist innlagnar á gjörgæsludeild síðustu daga. Í tilkynningu frá spítalanum segir að stjórnun aðgerða sé á höndum viðbragðsstjórnar sem skipuð er af forstjóra, framkvæmdastjórum lækninga og hjúkrunar, framkvæmdastjóra eignasviðs, framkvæmdastjóra bráðasviðs og farsóttarnefnd. Formaður farsóttarnefndar er Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar. Viðbragðsstjórnin kom saman til fundar í hádeginu í dag til þess að meta stöðuna og ákveða næstu aðgerðir. Eftirfarandi var meðal þess sem fram kom eða var ákveðið: Klínískar deildir · Ekki er ástæða til að rýma eða breyta deildum vegna faraldursins. · Allar deildir taka inflúensusjúklinga. · Yfirmenn hafa heimild til að færa starfsmenn milli deilda tímabundið, ef aðstæður krefjast. · Valkvæð starfsemi verður takmörkuð eftir því sem við á. Bráðamóttökur · Starfsemi bráðamóttaka verður með óbreyttum hætti. · Greiningarsveit verður ekki virkjuð að svo stöddu. · Áfallamiðstöð verður ekki virkjuð. Bjargir · Hjúkrunarvörur - almenn birgðastaða er góð. · Lyfjabirgðir eru nægjanlegar. · Tækjabúnaður - bætt hefur verið við tækjakost spítalans. Farsóttarnefnd Landspítala ítrekar tilmæli sín til almennings að takmarka heimsóknir sínar til sjúklinga á sjúkrahúsinu meðan á inflúensufaraldrinum stendur. Einungis þeir sem eiga brýnt erindi mega koma inn á spítalann, aðrir eru hvattir til að nota símann og tala við sjúklingana sjálfa eða starfsfólk viðkomandi deildar.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira