Laun í sjávarútvegi 48 milljarðar í fyrra 29. október 2009 04:30 Formaður LÍÚ segir útveginn taka mikilvægan þátt í endurreisn samfélagsins. Útflutningstekjur sjávarútvegsins nema að líkindum 195 milljónum á þessu ári.fréttablaðið/stefán
Samanlagðar skattgreiðslur fyrirtækja í sjávarútvegi námu samtals rúmlega fimm milljörðum króna á síðasta ári. Tekjuskattur fyrirtækja nam 2,2 milljörðum og tryggingagjald nam 2,7 milljörðum. Sérstakur auðlindaskattur útgerðarinnar var 170 milljónir. Afsláttur var veittur af auðlindaskattinum á síðasta fiskveiðiári og árið þar á undan vegna niðurskurðar í þorskheimildum. Hátt olíuverð hafði að auki áhrif til lækkunar. Skatturinn kemur til fullrar greiðslu á nýhöfnu fiskveiðiári og er áætlaður 1,3 milljarðar. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að skattar álfyrirtækja námu 1,9 milljörðum í fyrra. Launagreiðslur fyrirtækja í sjávarútvegi námu samtals 48 milljörðum á síðasta ári. Af þeirri fjárhæð greiddu útgerðarfélög þrjátíu milljarða og fiskvinnslan átján. Allt bendir til að útflutningstekjur sjávarútvegsins nemi 195 milljörðum króna á þessu ári en í fyrra voru þær 170 milljarðar. Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna hefst í dag. Á honum verður auk annars rætt um þær vár sem helst steðja að greininni; Evrópusambandsaðild og fyrningu aflaheimilda. Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, segir báða þætti skaðlega sjávarútveginum. Hann trúir þó ekki að farin verði leið upptöku, eins og útgerðarmenn kalla fyrningaráformin, þó að kveðið sé á um það í stjórnarsáttmálanum. Það mat grundvallar hann á starfi nefndar sjávarútvegsráðherra um endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar en hún á að gæta að því að sjávarútvegi séu sköpuð góð rekstrarskilyrði til langs tíma auk þess að stuðla að sátt um fiskveiðistjórnina. Hvorugt þessara markmiða náist verði aflaheimildir fyrndar enda setji sú leið meira eða minna öll sjávarútvegsfyrirtækin á hliðina. Adolf segir sjávarútveginn taka mikilvægan þátt í endurreisn samfélagsins og þannig eigi það að vera. Nauðsynleg forsenda þess sé að Ísland hafi fullt forræði yfir auðlindinni en það kunni að tapast með aðild að Evrópusambandinu. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Fleiri fréttir Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Sjá meira