Adakris er orðinn stærsti verktaki Reykjavíkurborgar 11. desember 2009 05:15 Sæmundarskóli rís. Skólinn er nefndur eftir Sæmundi fróða og á samkvæmt útboðslýsingu að vera 5.800 fermetar með íþróttahúsi. Áætlaður kostnaður árið 2007 var 1,6 milljarðar.Fréttablaðið/gva
Litháíska verktakafyrirtækið Adakris hefur fengið 385 milljónir greiddar frá Reykjavíkurborg á árinu, en Malbikunarstöðin Höfði, opinbert fyrirtæki, hefur fengið næst mest, 263 milljónir. Blaðið hefur fengið yfirlit frá borginni yfir þau fimm fyrirtæki sem mestar fjárhæðir hafa fengið frá borginni á ári hverju síðustu þrjú ár. Tölurnar eru lægri í ár en árin á undan. Þannig fengu Heimir og Þorgeir rúmar 568 milljónir árið 2008 og Eykt 503 milljónir árið 2007. Ekki er mikið um nýframkvæmdir hjá borginni þessa dagana og verkefni Adakris, við Sæmundar- og Norðlingaskóla, voru ákveðin fyrir bankahrun. Því má ætla að tölur um heildargreiðslur til verktaka á næsta ári verði enn lægri. Þegar tilkynnt var um að litháískt fyrirtæki fengi þessi tvö stóru verk á krepputímum vakti það nokkra umræðu. Rætt var um að illt væri að láta erlenda verka- og iðnaðarmenn hafa þessi störf. Nær væri að láta innlend fyrirtæki sjá um þetta. Framkvæmdastjóri Samiðnar sagði borgina hafa „ákveðið að flytja 120 ársverk í byggingariðnaði úr landi“. Hann efaðist um að Adakris færi eftir íslenskum reglum. En reyndin hefur verið sú eftir gjaldeyrishrun að ódýrara er að greiða íslensk laun en evrópsk. Um 92 prósent starfsmanna Adakris eru Íslendingar og útlendingarnir hafa verið búsettir á landinu í mörg ár, að sögn Ágústs Snæbjörnssonar, sem á helmingshlut í fyrirtækinu. „Planið var að vera með okkar eigin starfsmenn sem eru Litháar flestir. Svo kom hrunið og eftir það fannst okkur að pólitískt, siðferðilega og efnahagslega væri besta lausnin að hafa Íslendinga í vinnu. Við munum áfram hafa eins marga Íslendinga og hægt er. Þetta er ekki útlenskara en það,“ segir hann. Ágúst tekur undir að það kunni að hafa unnið gegn fyrirtækinu að vera með erlendar rætur. Jafnvel hafi verið talað um að endurskíra fyrirtækið upp á íslensku. Fyrirtækið fær enn ekki fyrirgreiðslu í bönkum, „ekki einu sinni fimm þúsund kall í yfirdrátt og engar verktryggingar heldur,“ segir Ágúst. Adakris versli mikið við íslenskar verslanir og heildsala en þurfi að staðgreiða vörurnar. Ágúst segist halda að Adakris sé eina fyrirtækið á Íslandsmarkaði með öll gæðavottorð og ISO-staðla skráða. Fyrir utan borgarverkefnin sér Adakris um alla innanhússmíði í nýbyggingu Háskólans í Reykjavík. Fyrirtækið var stofnað 1965 sem ríkisfyrirtæki í Litháen og einkavætt 1993. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira