Innlent

Risastór hvalur í Kringlunni

hvalurinn færður Talsvert átak var að koma hvalnum fyrir í Kringlunni og þurfti að labba með hann langa leið á áfangastað. fréttablaðið/valli
hvalurinn færður Talsvert átak var að koma hvalnum fyrir í Kringlunni og þurfti að labba með hann langa leið á áfangastað. fréttablaðið/valli

Risastórum hval var komið fyrir í Kringlunni í gær og verður hann þar til sýnis næstu daga.

Hvalurinn verður í Kringlunni í tengslum við frumsýningu myndarinnar Reykjavík Whale Watching Massacre, sem verður frumsýnd þann 4. september næstkomandi.

Það er Júlíus Kemp sem leikstýrir myndinni, sem fjallar um hóp ferðamanna sem fer í hvalaskoðun. Myndin er líklega fyrsta íslenska hryllingsmyndin sem gerð hefur verið. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×