Deilt um afstöðu lögspekinga í fjárlaganefnd 1. desember 2009 17:27 Höskuldur Þórhallsson.
Höskuldur Þórhallsson nefndarmaður í fjárlaganefnd segist hafa aðra upplifun af þeim fundi sem haldinn var í fjárlaganefnd í dag þegar fjórir lögfræðingar voru kallaðir fyrir nefndina til að leggja mat sitt á hvort fyrirhugað frumvarp um Icesave stangist á við stjórnarskrá. Að mati Höskuldar er alls ekki hægt að segja að þrír af lögfræðingunum hafi verið samdóma í því áliti að frumvarpið stangist ekki á við stjórnarskrá. Sigurður Líndal hefur áður sagt það álitamál en ásamt honum mættu fyrir nefndina þau Eiríkur Tómasson, Björg Thorarensen og Ragnhildur Helgadóttir. „Í fyrsta lagi ákveður Guðbjartur sjálfur að kalla þessa fjóra lögfræðinga fyrir nefndina án þess að ræða það við aðra nefndarmenn," segir Höskuldur. „Tveir af þessum fjórum voru þeir lögfræðingar sem veittu ráðgjöf við breytingu á lögunum frá því í lok ágúst, þau Eiríkur og Björg. Þau hefðu væntanlega ekki veitt þá ráðgjöf hefðu þau talið að hún færi í bága við stjórnarskránna og því má segja að þeirra afstaða hafi legið fyrir. Eiríkur lýsti því reyndar yfir að hann hefði fengið örstuttan tíma til þess að fara yfir málið en að eftir þá yfirferð mæti hann það ekki þannig að þetta færi í bága við stjórnarskrá." Höskuldur segir hinsvegar að ekki hafi komið skýrt fram af hálfu hinna, það er að segja Bjargar og Ragnhildar, að þeirra skoðun væru sú sama. „Ég kallaði eftir því í ljósi þess að Sigurður Líndal treysti sér einn til að leggja fram skriflega álitsgerð að samskonar álit kæmi frá hinum lögmönnunum þannig að stjórnmálamennirnir færu ekki að túlka orð þeirra í sína hvora áttina," segir Höskuldur. „Á meðan það er ekkert skriflegt frá hinum lögfræðingunum er afar erfitt að fullyrða að þrír af fjórum hafi komist að samdóma niðurstöðu eins og Guðbjartur gerir," segir hann að lokum.
Tengdar fréttir Lögspekingar telja Icesave frumvarpið ekki stangast á við stjórnaskrá Þrír af þeim fjórum lögspekingum sem kallaðir voru fyrir fjárlaganefnd í dag til þess að ræða hvort fyrirhuguð lög um ríkisábyrgð vegna Icesave samningana standist stjórnarskrá eru á því að svo sé ekki. Sá fimmti telur að þessa spurningu þurfi að kanna frekar. 1. desember 2009 16:28 Fjárlaganefnd: Lögspekingar ræða Icesave og stjórnarskrá Nokkrir af virtustu lögfræðingum landsins hafa verið boðaðir á fund fjárlaganefndar í hádeginu í dag. Kallað hefur verið eftir áliti þeirra á því hvort fyrirliggjandi frumvarp um ríkisábyrgð í Icesave málinu standist stjórnarskrána. Á meðal gesta nefndarinnar í dag er Sigurður Líndal prófessor sem á dögunum skrifaði grein í Fréttablaðið þar sem vakin er athygli á því hve lítil umræða hafi farið fram um Icesave með tilliti til stjórnarskráarinnar. 1. desember 2009 11:28 Mest lesið Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjanotkun Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs Innlent Fleiri fréttir Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjanotkun Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Icelandair enn og aftur í vandræðum Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Sjá meira
Lögspekingar telja Icesave frumvarpið ekki stangast á við stjórnaskrá Þrír af þeim fjórum lögspekingum sem kallaðir voru fyrir fjárlaganefnd í dag til þess að ræða hvort fyrirhuguð lög um ríkisábyrgð vegna Icesave samningana standist stjórnarskrá eru á því að svo sé ekki. Sá fimmti telur að þessa spurningu þurfi að kanna frekar. 1. desember 2009 16:28
Fjárlaganefnd: Lögspekingar ræða Icesave og stjórnarskrá Nokkrir af virtustu lögfræðingum landsins hafa verið boðaðir á fund fjárlaganefndar í hádeginu í dag. Kallað hefur verið eftir áliti þeirra á því hvort fyrirliggjandi frumvarp um ríkisábyrgð í Icesave málinu standist stjórnarskrána. Á meðal gesta nefndarinnar í dag er Sigurður Líndal prófessor sem á dögunum skrifaði grein í Fréttablaðið þar sem vakin er athygli á því hve lítil umræða hafi farið fram um Icesave með tilliti til stjórnarskráarinnar. 1. desember 2009 11:28