Spyr Steingrím um kostnað ríkisins vegna launaálags formanna Magnús Már Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2009 16:41 Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/Pjetur „
Það voru miklar umræður um eftirlaunafrumvarpið á sínum tíma og ég tel eðlilegt að það sé dregið fram hverjir það eru sem fengið hafa greitt og hversu mikið," segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en hann hefur lagt fram á Alþingis fyrirspurn þess efnis til Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Eftirlaunalögin umdeildu voru samþykkt í desember árið 2003 en með þeim var æðstu embættismönnum tryggð betri lífeyriskjör en almenningi. Í lögunum var formönnum stjórnmálaflokka, sem jafnframt eru ekki ráðherrar, tryggð 50% launaálag á þingfararkaup en það er 520 þúsund krónur á mánuði. Formenn stjórnarandstöðuflokka eru því með 780 þúsund króna grunnlaun. Jón segist ekki vera að gagnrýna þessar aukagreiðslur til formannanna. Greiðslurnar séu með öllu réttlætanlegar því hugsunin hafi verið að jafna stöðuna á milli formanna stjórnarandstöðuflokka og stjórnarflokka. „En það var alltaf talað um þetta frumvarp sem einhvern bastarð og að þetta hafi verið keyrt sérstaklega í gegn til að auka eftirlaunaréttindi ákveðna ráðherra. Mér fannst þessi þáttur gleymast svolítið í þeirri umræðu," segir Jón. Eðlilegt væri því að fá skjalfest hverjir það eru sem fengið hafa þessar greiðslur, og þá hversu háar, í ljósi gagnrýni ákveðna þingmanna á sínum tíma.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Innlent Fleiri fréttir „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Sjá meira