Bróðir Óla Palla er í Skúrnum 10. september 2009 02:15 Taka upp grasrótina Gunnar Gunnarsson og Ragnar Gunnarsson eru alltaf í Skúrnum.fréttablaðið/Stefán
Litli bróðir Óla Palla á Rás 2 heitir Gunnar Gunnarsson og sér um þáttinn Skúrinn ásamt Ragnari Gunnarssyni. Báðir starfa sem tæknimenn hjá Ríkisútvarpinu. „Í Skúrnum er verið að sinna grasrótinni,“ segir Gunnar. „Við fórum upphaflega í æfingahúsnæði á RÚV-bílnum og tókum upp hljómsveitir, en þar sem það reyndist dálítið mikið mál smölum við nú böndunum inn í stúdíó 12 og tökum þau upp þar.“ Þrettán Skúrar hafa farið í loftið til þessa með 2-4 sveitum í hverjum þætti. „Það hafa alls konar hljómsveitir komið fram, bæði þekktar eins og Hoffmann, Weapons og Johnny & The Rest, og óþekktar eins og Ferlegheit og Blinking Number. Það eru 16-17 ára strákar sem líktust helst Þursaflokknum, fannst mér. Elsta bandið var svo Hempujarlar, sextugir karlar í hálfgerðum Megasar-fílingi. Það er allri tónlist gert jafnhátt undir höfði í Skúrnum,“ segir Gunnar. Gunnar, sem er 25 ára, fimmtán árum yngri en Óli Palli, segir að stóri bróðir hafi ekki haft hönd í bagga með að koma þættinum á koppinn. „Sigrún Stefáns bað okkur nú bara um að sjá um svona þátt,“ segir hann. „Auðvitað lít ég upp til stóra bróður, en við erum á allt annarri línu í músíkinni. Á meðan hann hlustar á brit-pop er ég helst fyrir harðari músík, metal og thrash metal.“ Gunnar segir að Skúrinn verði á dagskrá eins lengi og einhver bönd vilja vera í honum, og biður áhugasama endilega að senda línu á skurinn@ruv.is. Skúrinn er á dagskrá öll fimmtudagskvöld á milli 23 og miðnættis á Rás 2.- drg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Sjá meira