Lífið

Leita að nýjum stjörnumfyrir kvikmyndina Gauragang

Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri hyggst finna Orm Óðinsson hvar sem hann er að finna á landinu. Leitin hefst 4. maí og lýkur í Reykjavík þann 9. maí.
fréttablaðið/Stefán
Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri hyggst finna Orm Óðinsson hvar sem hann er að finna á landinu. Leitin hefst 4. maí og lýkur í Reykjavík þann 9. maí. fréttablaðið/Stefán
"Jú, við ætlum að fara um landið, leita að Ormi og öðrum leikurum í myndina," segir Gunnar Björn Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu stendur til að kvikmynda hina sígildu sögu Ólafs Hauks Símonarsonar, Gauragang, en í henni glíma áðurnefndur Ormur Óðinsson og vinir hans við þau vandamál sem fylgja unglingsaldrinum.

Leikstjórinn Gunnar Björn og kvikmyndafyrirtækið ZikZak ætla fara fremur óhefðbundna leið til að finna leikara í myndina því þeir ætla að þvælast um landið og fá fólk á öllum aldri í prufur. Gauragangur var sett upp í Þjóðleikhúsinu fyrir allnokkrum árum og þá lék stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson aðalhlutverkið.

Um er að ræða hálfgerða Gauragangs-leit í ætt við Idol-stjörnuleit Stöðvar 2. Ekki eru gerðar aðrar kröfur en þær að fólk geti leikið þannig að um er að ræða kjörið tækifæri fyrir áhugaleikhópa, skólafólk með leikaradrauma í maganum og svo hið venjulega meðaljón sem hefur falda leikhæfileika. ¿Við ætlum að fara á alla helstu staðina, byrjum á Ísafirði þann fjórða maí, svo verður farið til Vestmannaeyja, Egilsstaða, Akureyri og herlegheitunum lýkur svo í Reykjavík þann 9. maí,¿ útskýrir Gunnar en upphaflega stóð til að fara í þessa miklu leitarferð síðustu helgina í apríl. "En svo var tilkynnt að þjóðin ætti að kjósa, það setti strik í reikninginn hjá okkur því við vildum ekki lenda í einhverjum kappakstri við frambjóðendur heldur einbeita okkur alfarið að okkar leit."

Gunnar lýsir því yfir að ekki sé búið að ráða í nein hlutverk í myndinni þannig að þeir séu opnir fyrir öllu hæfileikafólki, hvar sem það leynist á landinu. Ekki þarf að skrá sig í prufurnar, fólk á einfaldlega að mæta á tilteknum tíma sem auglýstur verður nánar síðar. ¿Þegar þetta er búið ætlum við að vera búnir að fullvissa okkur um að Ormur og allir hinir séu fundnir,¿ segir Gunnar en ráðgert er að tökur hefjist í lok september eða byrjun október. ¿Við erum sjálfir mjög spenntir fyrir þessu og teljum þetta bestu leiðina til að finna rétta fólkið.¿freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.