Leita að nýjum stjörnumfyrir kvikmyndina Gauragang 11. apríl 2009 11:00 Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri hyggst finna Orm Óðinsson hvar sem hann er að finna á landinu. Leitin hefst 4. maí og lýkur í Reykjavík þann 9. maí. fréttablaðið/Stefán "
Jú, við ætlum að fara um landið, leita að Ormi og öðrum leikurum í myndina," segir Gunnar Björn Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu stendur til að kvikmynda hina sígildu sögu Ólafs Hauks Símonarsonar, Gauragang, en í henni glíma áðurnefndur Ormur Óðinsson og vinir hans við þau vandamál sem fylgja unglingsaldrinum. Leikstjórinn Gunnar Björn og kvikmyndafyrirtækið ZikZak ætla fara fremur óhefðbundna leið til að finna leikara í myndina því þeir ætla að þvælast um landið og fá fólk á öllum aldri í prufur. Gauragangur var sett upp í Þjóðleikhúsinu fyrir allnokkrum árum og þá lék stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson aðalhlutverkið. Um er að ræða hálfgerða Gauragangs-leit í ætt við Idol-stjörnuleit Stöðvar 2. Ekki eru gerðar aðrar kröfur en þær að fólk geti leikið þannig að um er að ræða kjörið tækifæri fyrir áhugaleikhópa, skólafólk með leikaradrauma í maganum og svo hið venjulega meðaljón sem hefur falda leikhæfileika. ¿Við ætlum að fara á alla helstu staðina, byrjum á Ísafirði þann fjórða maí, svo verður farið til Vestmannaeyja, Egilsstaða, Akureyri og herlegheitunum lýkur svo í Reykjavík þann 9. maí,¿ útskýrir Gunnar en upphaflega stóð til að fara í þessa miklu leitarferð síðustu helgina í apríl. "En svo var tilkynnt að þjóðin ætti að kjósa, það setti strik í reikninginn hjá okkur því við vildum ekki lenda í einhverjum kappakstri við frambjóðendur heldur einbeita okkur alfarið að okkar leit." Gunnar lýsir því yfir að ekki sé búið að ráða í nein hlutverk í myndinni þannig að þeir séu opnir fyrir öllu hæfileikafólki, hvar sem það leynist á landinu. Ekki þarf að skrá sig í prufurnar, fólk á einfaldlega að mæta á tilteknum tíma sem auglýstur verður nánar síðar. ¿Þegar þetta er búið ætlum við að vera búnir að fullvissa okkur um að Ormur og allir hinir séu fundnir,¿ segir Gunnar en ráðgert er að tökur hefjist í lok september eða byrjun október. ¿Við erum sjálfir mjög spenntir fyrir þessu og teljum þetta bestu leiðina til að finna rétta fólkið.¿freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Lífið samstarf Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Leikjavísir Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira