Segir úrskurð skapa óvissu í Miðskógum 1. desember 2009 05:00 Eigendur Miðskóga 8 á Álftanesi segja nágranna sinn á Miðskógum 6, sem er bæjarfulltrúi og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar, hafa beitt sér gegn byggingu einbýlishúss á lóðinni til að tryggja sjálfum sér óskerta sjávarsýn úr húsi sínu. Hann segist hins vegar verja hagsmuni sveitarfélagsins. „
Deilurnar hafa verið langar, pólitískar, persónulegar, rætnar og erfiðar,“ segir Kristján Sveinbjörnsson bæjarfulltrúi í bréfi til bæjarstjórnar Álftaness um mál lóðarinnar á Miðskógum 8. Bæjarstjórnin samþykkti nýlega byggingarleyfi fyrir einbýlishús á sjávarlóðinni á Miðskógum 8. Kristján býr þar fyrir ofan, á Miðskógum 6, og sendir bréf sitt til bæjarstjórnar sem íbúi þar. Hann gerir að umtalsefni úrskurð úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála um að lóðin á Miðskógum 8 sé byggingarlóð. Kristján hefur ávallt lagst gegn byggingu húss á þessari nágrannalóð sinni. „Úrskurðurinn er ákveðinn áfangi en um leið skapar hann óvissu og vandræði sem ekki hafa verið leyst né leiða leitað til lausna. Því er þessu máli langt í frá lokið þrátt fyrir úrskurðinn,“ skrifar Kristján bæjarstjórninni. Í bréfi sínu rekur Kristján þá ókosti sem fylgi byggingu húss á Miðskógum 8, meðal annars slæm áhrif á Skógtjörn sem byggðin stendur við. Samþykki bæjarstjórn byggingarleyfi muni hann „skoða þann möguleika“ að fá sérstakan úrskurð frá Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála um þá ákvörðun. Eins sé hugsanlegt að leita til umboðsmanns Alþingis. Kristján vék sæti á bæjarstjórnarfundinum en félagar hans í minnihluta Á-listans lögðu til að skoðaður yrði grundvöllur þess að kæra úrskurð úrskurðarnefndarinnar. Nefndin hefði gert mistök með því að kanna ekki ný gögn heldur byggja á dómi sem gekk í Hæstarétti. „Bæði röksemdafærsla og niðurstaða nefndarinnar vekur áleitnar spurningar um hvort verjandi er að túlka atburðarás og gjörninga eingöngu til að undirbyggja vörn um einkahagsmuni og um leið hunsa alfarið stefnu sveitarfélagsins í skipulagsmálum,“ segir í bókun fulltrúa Á-listans. Þeir nefndu þann möguleika til lausnar að eigendur Miðskóga 8 fengju nýja lóð annars staðar. Byggingarleyfið var hins vegar samþykkt í bæjarstjórn af meirihluta fulltrúa Sjálfstæðisflokks og eins bæjarfulltrúa sem sagt hefur skilið við Á-listann. „Niðurstaða málsins kemur ekki á óvart. Þetta mál hefur kostað bæjarfélagið verulegar fjárhæðir í lögfræði- og málskostnað, fyrir utan neikvæða umræðu í bæjarfélaginu. Það er löngu orðið tímabært að finna þessu máli farsælan endi,“ bókaði meirihlutinn. gar@frettabladid.is
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Sjá meira