Innlent

Kjötsúpa og þungarokk í Vítisenglaveislu

Búast má við talsverðri löggæslu á sama tíma og Vítisenglar hlusta á þungarokk og borða kjötsúpu.
Búast má við talsverðri löggæslu á sama tíma og Vítisenglar hlusta á þungarokk og borða kjötsúpu.

Margt verður á boðstólnum í innflutningsgleði Fáfnis sem verður haldin annað kvöld, en mikill viðbúnað er vegna komu Vítisengla víðsvegar úr heiminum á Leifsstöð í dag. Dómsmálaráðuneytið hefur sagt fyrirhugaðan fagnað Fáfnis ógna allsherjareglu og þjóðaröryggi. Enn hefur enginn Vítisengill komið inn í landið en félagar þeirra, með Jóni Trausta Lútherssyni fremstan í flokki, bíða eftir þeim upp á Leifstöð.

Samkvæmt heimildum verður mörgu tjaldað til á morgun en Vítisengla-veislan verður haldin í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði nærri Straumsvík. Meðal þess sem verður á boðstólnum er alíslensk kjötsúpa sem Fáfnis-maðurinn Sverrir Þór Einarsson, betur þekktur sem Sverrir Tattú, hyggst elda. Þá munu verða haldnir tónleikar en það er þungarokkahljómsveitin Dark Harvest, með gítarleikaranum Gulla Falk í farabroddi, sem mun spila fyrir dansi.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem hljómsveitin spilar fyrir Vítisengla því þeir spiluðu fyrir þá í Noregi fyrir um ári síðan. Svo virðist sem Vítisenglarnir hafi tekið ástfóstri við hljómsveitina sem mun spila í annað sinn fyrir englana á morgun.

Viðbúnað lögreglunnar er gríðarlegur, meðal annars hefur landamæraeftirlit verið hert til muna. Þá má búast við mikilli löggæslu í kringum fagnað Fáfnismanna á morgun. Að auki hefur Bæjarstjórn Hafnarfjarðar gefið út yfirlýsingu varðandi félagsheimili vélhjólamannanna. Þá sagði Lúðvík Geirsson í fréttum Stöðvar 2 í gær að bæjaryfirvöld myndu sjá til þess að Fáfnismenn héldu sig innan ramma laganna.

Viðbúið er að veislan hefjist síðdegis á morgun með pompi og prakt.








Tengdar fréttir

Klúbbhús Fáfnis í ólöglegu húsnæði

Klúbbhús vélhljólaklúbbsins Fáfnis sem fyrirhugað er að opna um helgina er í ólöglegu húsnæði. Það er byggt og samþykkt sem iðnaðarhúsnæði og öll breyting á því í aðra veru er ekki heimil.

Tugir Vítisengla væntanlegir í dag

Vítisenglar frá öllum Norðurlöndunum og víðar munu reyna að komast inn í landið í dag þrátt fyrir hert landamæraeftirlit samkvæmt heimildum Vísis. Um er að ræða tugi Vítisengla víða um heim. Meðal annars munu Vítisenglarnir koma frá Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Bretlandi og nokkrir frá Bandaríkjunum auk Norðurlandanna. Þeir fyrstu munu koma hingað með flugi um hádegisbilið og er búist við að þeir síðustu munu lenda á Íslandi um miðnætti.

Fáfnir opnar nýtt klúbbhús

Vélhjólaklúbburinn Fáfnir ætlar að opna nýtt klúbbhús í Hafnarfirði um næstu helgi. Fáfnir er opinber stuðningsklúbbur Hell's Angels klíkunnar sem ítrekað hefur reynt að ná fótfestu hér á landi.

Vítisenglaveisla ógn við þjóðaröryggi

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að taka upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá 5. mars til og með 7. mars. Í tilkynningu í Lögbirtingablaðinu kemur fram að breytingunni sé ætlað að „koma í veg fyrir væntanlega komu ákveðins hættulegs hóps frá og um nágrannalönd Íslands í Evrópu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×