Amfetamín er enn framleitt hér á landi 21. desember 2009 06:00 Yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir það magn sem götuhópurinn hefur tekið á árinu bera vott um frábæran árangur.
Lögreglan hefur upplýsingar um að amfetamín sé framleitt hér á landi. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta. „Við höfum upplýsingar um að amfetamín hafi verið framleitt á Íslandi og að það sé ennþá gert," segir Karl Steinar. „Það er bæði flutt inn og framleitt að einhverju leyti hér innan lands. Í nokkrum málum sem upp hafa komið hefur verið um að ræða smygl á amfetamíni í fljótandi formi, sem hefur þá átt að fullvinna hér. Hægt er að fullvinna þetta efni á ýmsum stigum framleiðslunnar." Spurður hvort talið sé að amfetamín sé framleitt í miklu magni hérlendis kveðst hann ekki vilja tjá sig frekar um málið á þessu stigi. Götuhópur fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið tæp 44 kíló af fíkniefnum í húsleitum það sem af er árinu. Á sama tíma í fyrra hafði hópurinn tekið rétt rúm níu kíló. Karl Steinar bendir á að fyrir utan það magn sem hér er um að ræða séu fjölmörg innflutningsmál, þar sem stórar fíkniefnasendingar hafi verið teknar. Þessar tölur segi því aðeins hluta sögunnar, en beri engu að síður vott um frábæran árangur. „Á þessum tíma í fyrra vorum við að hefja undirbúning þess að taka þessar kannabisræktanir. Við vorum þá með ábendingar um að mikil sveifla væri að ganga yfir í innlendri framleiðslu á kannabisefnum. Við tókum þá ákvörðun að einbeita okkur að þessum málum og það hefur sýnt sig að sú ákvörðun var hárrétt. Við höfum verið að taka meira en eina ræktun á viku að meðaltali. Það eru ekki mörg ár síðan sama magn og við erum að taka á viku núna var tekið á heilu ári. Munurinn er því yfirgengilega mikill." Karl Steinar segir þessa aukningu stafa af því að auk þess sem fíkniefnadeildin hafi einbeitt sér að kannabisræktunum virðist uppsveifla hafa verið í framleiðslu fíkniefna og sölu þeirra í kjölfarið. Framboð af kókaíni hafi verið heldur minna en oft áður. Amfetamín hafi hins vegar verið algengasta sterka efnið hér á landi í mörg ár.jss@frettabladid.is
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira